Kjartan ákærður fyrir gróf kynferðisbrot gegn dætrum sínum

Kjartan Adolfs­son var dæmdur fyrir kyn­ferð­is­brot gegn elstu dóttur sinni árið 1991. Hún gerði sitt besta til að vernda yngri systur sínar fyrir Kjartani, en nú er hann ákærður fyrir að hafa brotið gróf­lega gegn þeim báðum um ára­bil.

Kjartan ákærður fyrir gróf kynferðisbrot gegn dætrum sínum

Hér­aðs­sak­sókn­ari hefur gefið út ákæru á hendur Kjartani Adolfs­syni þar sem honum er gefið að sök að hafa beitt dætur sínar grófu kyn­ferð­is­of­beldi um margra ára skeið. 

Stundin hefur fjallað ítar­lega um brot manns­ins, en málið var þing­fest í Hér­aðs­dómi Aust­ur­lands í gær. Í síð­asta tölu­blaði birt­ist við­tal við Önnu Kjart­ans­dóttur þar sem hún sagði frá mis­þyrm­ing­unum sem hún mátti þola í æsku, bæði af hendi föður síns og ofbeld­is­fullrar stjúpu.

Kjartan var dæmdur í tíu mán­aða fang­elsi árið 1991 fyrir ítrekuð kyn­ferð­is­brot gegn elstu dóttur sinni, Guðrúnu Kjart­ans­dóttur, sem árang­urs­laust reyndi að vernda yngri systur sínar fyrir Kjartani.

Guðrún sagði sögu sína í við­tali við Stundina þann 25. nóv­em­ber 2017, en jafn­framt var greint frá því að systir Kjartans hefði til­kynnt hann til barna­vernd­ar­yf­ir­valda án árang­urs. Nýlega var Kjartan svo færður í gæslu­varð­hald, grun­aður um að hafa brotið gegn þriðju dótt­ur­inni, Lindu Bíu Kjart­ans­dóttur. 

Ákæra hér­aðs­sak­sókn­ara gegn Kjartani lýtur að brotum hans gegn Önnu og Lindu. Brotunum er lýst með ítar­legum hætti í ákæru, en þau voru marg­vís­leg og gróf, framin þegar Anna var á aldr­inum 5 til 12 ára og áttu sér stað á heim­ili þeirra og á gisti­stað. Fjöl­skyldan var þá búsett í Tælandi, en Kjartani er einnig gefið að sök að hafa strokið Önnu um rass­inn þegar hún var orðin fimmtán ára gömul og þau voru við störf í frysti­húsi á Íslandi. Þá er hann ákærður fyrir brot gegn Lindu þegar hún var á aldr­inum 7 til 9 ára.

Fram kemur í ákærunni að Kjartan hafi nýtt sér yfir­burði sína gagn­vart dætrum sínum og  traust þeirra og trúnað til sín sem föður. Hátt­semin varði við 1. mgr. 194. gr. og 1. mgr. 202. gr. almennra hegn­ing­ar­laga og 1. mgr. 202. gr. Jafn­framt er honum gefið að sök að hafa brotið gegn nálg­un­ar­banni árið 2016 með því að hitta Önnu af ásettu ráði í versl­un­ar­mið­stöð.

„Eftir hvert ein­asta skipti sem pabbi var búinn að mis­nota mig sagði hann fyr­ir­gefðu og lof­aði að gera þetta aldrei aftur. Samt gerði hann þetta alltaf aftur. Ég sagði við hann að þetta væri allt í lagi, ég veit ekki af hverju, ég vissi ekki að það væri rangt að gera þetta,“ sagði Anna í við­tal­inu sem birt­ist á dög­unum. „Ég hélt að þetta væri eðli­legt og allar stelpur lentu í því. Hann var líka búinn að segja að ef ég myndi segja ein­hverjum frá þessu þá myndi hann lenda í vondum málum og ég var hrædd við það. Hvað yrði þá um mig? Ég var búin að missa mömmu, og án pabba – hvar væri ég þá?“

Kerfið brást sytrum hennar 

Eldri systir hennar hefur verið mjög gagn­rýnin á að faðir hennar, sem var dæmdur barn­a­níð­ingur, fékk eft­ir­lits­laust að halda heim­ili með börnum. „Ísland er fámennt sam­fé­lag og þar væri ekki erfitt að halda skrá yfir dæmda menn og veita þeim eft­ir­lit. Pabbi var dæmdur maður og hafði misst for­ræðið yfir mér þegar hann stofn­aði nýja fjöl­skyldu. Það hefði ekki átt að vera erfitt að fylgj­ast með honum. Svo má velta því upp hvort hann ætti yfir­höfuð að vera með for­ræði yfir börnum og deila heim­ili með þeim,“ sagði Guðrún í sam­tali við Stundina. 

Engar eft­ir­lits­heim­ildir eru í lögum með dæmdum barn­a­níð­ingum. Barna­vernd­ar­stofa hefur í tvígang sent Alþingi til­lögu að breyt­ingu á lögum sem myndi heim­ila eft­ir­lit með mönnum sem eru taldir hættu­legir og lík­legir til að brjóta af sér aftur, en póli­tískur vilji hefur ekki verið fyrir því. 

Kjartan hefur setið í gæslu­varð­haldi frá því í októ­ber, þegar Linda kærði hann fyrir kyn­ferð­is­brot, en áður hafði Anna lagt fram kæru á hendur honum. Á heim­il­inu voru einnig tvö yngri systk­ini þeirra en börnin eru öll komin í fóstur. Guðrún sagði gott að vita af því að börnin væru komin í skjól. „Síðan vona ég að pabbi minn fái þann dóm sem hann verð­skuldar. Fyrst hann vissi að hann gæti fengið sextán ára dóm fyrir þetta á hann að fá hann. Af því að hann valdi þetta sjálfur.“

Fram til þessa hefur Kjartan neitað sök. Lög­reglu­stjóri hefur bent á að í frá­sögnum dætra hans sé hægt að greina ákveðið mynstur sem bendi til þess að hann sé hættu­legur umhverfi sínu. Gæslu­varð­hald yfir honum hefur ítrekað verið fram­lengt á þeim for­sendum að það stríði gegn rétt­ar­vit­und almenn­ings að hann gangi laus á meðan málin eru til rann­sóknar. 

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kynferðisbrot

FréttirKynferðisbrot

Myndir af neyð­ar­mót­töku sendar áfram: „Ekki myndir sem ég vildi sjá af sjálfri mér“

Lögreglu var heim­ilt að senda myndir sem teknar voru af Guðnýju S. Bjarna­dóttur á neyð­ar­mót­töku fyrir þolendur kyn­ferð­is­of­beldis á verj­anda manns sem hún kærði fyrir nauðgun. Þetta er nið­ur­staða Per­sónu­verndar. Guðný segir ótækt að ger­endur í kyn­ferð­is­af­brota­málum geti með þessum hætti fengið aðgang að við­kvæmum myndum af þolendum. „Þetta er bara staf­rænt kyn­ferð­is­of­beldi af hendi lög­regl­unnar.“

Mest lesið

2
Erlent

Olíu­risarnir græða stórfé á stríð­inu í Mið-Aust­ur­löndum

Hagnaður þriggja stærstu olíu- og gas­fyr­ir­tækja Evrópu nam sam­tals rúm­lega 25 millj­örðum Banda­ríkja­dala á þriðja árs­fjórð­ungi. Stríðið í Mið-Aust­ur­löndum hefur leitt til hækk­andi orku­verðs og auk­innar fram­legðar í olíu­hreinsun. Fyr­ir­tækin hagn­ast á sama tíma og hærra elds­neyt­is­verð og aukin verð­bólga þrengja að heim­ilum og fyr­ir­tækjum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár