Varaði barnaverndaryfirvöld við bróður sínum áður en dætur hans kærðu hann fyrir kynferðisbrot

Systir manns, sem er grun­aður um að hafa mis­notað dætur sínar, til­kynnti hann til barna­vernd­ar­yf­ir­valda, en fékk þau svör að ekk­ert væri hægt að gera fyrr en kom­inn væri upp rök­studdur grunur um að hann hefði brotið gegn þeim. Í mörg ár hefur fjöl­skyldan setið hjá, full van­máttar og vonað það besta en ótt­ast það versta. Nú hafa tvær dætur hans kært hann fyrir kyn­ferð­is­of­beldi, en fyrir er hann dæmdur fyrir brot gegn elstu dóttur sinni.

Varaði barnaverndaryfirvöld við bróður sínum áður en dætur hans kærðu hann fyrir kynferðisbrot
Van­máttur Út frá töl­fræð­inni átt­aði Kolbrún sig á því að það væri meiri líkur en minni að bróðir hennar myndi mis­nota fleiri börn en hún gat ekk­ert gert. Því fylgdi mjög vond til­finn­ing. Mynd: Úr einkasafni

Maður, sem nú hefur verið hand­tek­inn í þriðja sinn grun­aður um kyn­ferð­is­brot gegn þremur dætrum sínum, hafði áður verið til­kynntur til barna­vernd­ar­yf­ir­valda af systur sinni, en henni, Kolbrúnu Jóns­dóttur, var sagt að ekk­ert væri hægt að gera vegna skorts á laga­heim­ildum. Ekkert eft­ir­lit var því til staðar með mann­inum, þrátt fyrir áskor­anir og þótt hann hefði áður verið dæmdur fyrir að brjóta gegn annarri dóttur sinni. „Við hringdum í barna­vernd vegna þess að við vorum hræddar um að bróðir okkar myndi end­ur­taka fyrri hegðun,“ segir hún.

Kolbrún seg­ist ekki hafa vitað af því fyrr en hún varð full­orðin kona að bróðir hennar hefði árið 1991 verið dæmdur fyrir ítrekað kyn­ferð­is­of­beldi gegn elstu dóttur sinni sem þá var fimm til sex ára gömul. Hún hafði heldur ekki vit­neskju um það að hann hefði setið inni vegna brot­anna, en hæfi­leg refs­ing var talin tíu mán­aða fang­elsi. Barns­móðir hans hafði farið fram …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár