Ásgeir mælir gegn opinberu eignarhaldi leigufélaga: „Hef ekki komið nálægt GAMMA síðan 2014“

Ásgeir Jónsson, dós­ent í hag­fræði, hélt fyr­ir­lestur um leigu­fé­lög og hús­næð­is­mark­að­inn fyrir stærsta leigu­fé­lag lands­ins fyrr í dag. Hann var áður efna­hags­ráð­gjafi GAMMA sem á eitt stærsta leigu­fé­lag lands­ins. Ásgeir seg­ist ekki hafa komið nálægt GAMMA frá 2014 og að hann vinni ekki fast fyrir neina hags­mun­að­ila á leigu­mark­aðnum í dag.

Skrá Heimavelli á markað
Skrá Heima­velli á markað Félagið Heima­vellir verður skráð á markað eftir rúman mánuð ef allt gengur eftir. Ásgeir Jónsson hag­fræð­ingur segir að opin­berir aðilar eigi ekki að keppa við einka­að­ila á leigu­fé­laga­mark­aðnum. Mynd: hi.is

Ásgeir Jónsson, dós­ent í hag­fræði við Háskóla Íslands, segir að hann hafi hætt að vinna hjá sjóðs­stýr­ing­ar­fyr­ir­tæk­inu GAMMA árið 2014 og hafi ekki gert það síðan. Hag­fræð­ing­ur­inn hélt erindi um leigu­fé­lög á Íslandi á ráð­stefnu á vegum stærsta leigu­fé­lags lands­ins, Heima­valla, fyrr í dag. GAMMA rekur eitt stærsta leigu­fé­lag lands­ins, Almenna leigu­fé­lagið. 

Fjallað var um erindi Ásgeirs í fjöl­miðlum, meðal ann­ars á Vísi, og var ekki tekið fram að hann væri fyrr­ver­andi efna­hags­ráð­gjafi GAMMA. „Ég hef ekki komið nálægt GAMMA síðan 2014. Ég er bara dós­ent við HÍ og er ekki samn­ings­bund­inn hjá neinum sem efna­hags­ráð­gjafi í dag,“ segir Ásgeir en í kjöl­farið varð hann efna­hags­ráð­gjafi Virð­ingar sem síðar rann inn í Kviku. „Ég hef ekk­ert komið nálægt Kvikunni,“ segir Ásgeir.

Bæði Heima­vellir og GAMMA, eða Almenna leigu­fé­lag GAMMA, verða skráð á markað á þessu ári og má ætla að núver­andi hlut­hafar fyr­ir­tækj­anna muni hagn­ast vel á þeim …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Sjóðsstýringarfyrirtækið GAMMA

ÚttektSjóðsstýringarfyrirtækið GAMMA

Stóra plan GAMMA: Ætla að græða á einka­væð­ingu og innviðum á Íslandi

Sjóð­stýr­ing­ar­fyr­ir­tækið GAMMA hefur stækkað ört síð­ast­liðin ár og teygir starf­semi sína nú til fjög­urra landa. Starf­semin er farin að líkj­ast starfi banka um margt þar sem fyr­ir­tækið sækir inn á lána­mark­að­inn. GAMMA er með sterk tengsl við Sjálf­stæð­is­flokk­inn og talar fyrir auk­inni einka­væð­ingu og minnk­andi rík­is­af­skiptum við upp­bygg­ingu inn­viða sam­fé­lags­ins.

29 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár