Eyþór vildi taka sæti forsætisráðherra

Morg­un­blaðið, sem Eyþór Arnalds á stóran hlut í, gagn­rýnir Dag B. Egg­erts­son harð­lega fyrir að hafa vísað Eyþóri af fundi í Höfða. Dagur segir Eyþór hafa ætlað að setj­ast í sæti sem ætlað var Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra.

Eyþór vildi taka sæti forsætisráðherra
Eyþór Arnalds Hlaut nýverið kosn­ingu í fyrsta sæti fram­boðs Sjálf­stæð­is­flokks­ins í borg­inni fyrir borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar sem haldnar verða í lok maí. Mynd: Heiða Helgadóttir

Eyþór Arnalds, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í kom­andi borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingum, bauðst til að setj­ast í sæti sem ætlað var for­sæt­is­ráð­herra á fundi þing­manna og borg­ar­full­trúa í Höfða sem hald­inn var á mánu­dag. Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri greinir frá þessu á Facebook, en þar bregst hann við umfjöllun Morg­un­blaðs­ins um þá sér­kenni­legu atburða­rás sem átti sér stað í Höfða í viku­byrjun. 

Eyþór Arnalds er kjöl­festu­eig­andi Morg­un­blaðs­ins; hann á 22,87 pró­senta hlut í Þórsmörk ehf. sem á 99 pró­sent í Árvakri, útgáfu­fé­lagi Morg­un­blaðs­ins.

Í stak­steinum Morg­un­blaðs­ins í dag er Dagur gagn­rýndur harð­lega fyrir að hafa vísað Eyþóri af fund­inum. „Var það gert í þágu sam­ræðu­stjórn­mál­anna? Var það gert til að auka skiln­ing þing­manna á þörfum Reykja­víkur? Var það gert til að styrkja stöðu Reykja­víkur? Var það gert, eins og borg­ar­stjóri heldur fram, vegna þess að odd­vit­inn á ekki enn sæti í borg­ar­stjórn?“ spyr stak­steina­höf­undur og svarar svo sjálfum sér: „Nei, ekk­ert af þessu getur átt við. Dagur veit, líkt og allir aðrir, að odd­vit­inn leiðir borg­ar­stjórn­ar­flokk Sjálf­stæð­is­flokks­ins og er á leið í borg­ar­stjórn. Þátttaka hans í sam­tali við þing­menn ætti því að vera af hinu góða.“

Dagur segir Morg­un­blaðið afbaka atburða­rás­ina og leggja allt út á versta veg. „Verður blaðið og rit­stjórn þess að eiga það við sig og sína lund,“ skrifar hann. Dagur seg­ist hafa boðað fund­inn í kjör­dæma­viku sam­kvæmt hefð og að höfðu sam­ráði við utan­rík­is­ráð­herra og for­sæt­is­ráð­herra. Í fund­ar­boði hafi komið skýrt fram að um hefð­bund­inn fund þing­manna Reykja­víkur og borg­ar­full­trúa í kjör­dæma­viku væri að ræða. Því hafi komið honum á óvart að hitta Eyþór Arnalds, verð­andi odd­vita Sjálf­stæð­is­flokks­ins í borg­ar­stjórn, rétt áður en fund­ur­inn hófst. Máls­at­vikum lýsir Dagur með eft­ir­far­andi hætti:

„Ég heils­aði honum í andyri húss­ins og sagði honum hvernig í mál­inu lagi, fund­ur­inn væri fyrir borg­ar­stjórn og þing­menn en fram­bjóð­endur hefðu ekki verið boð­aðir. Ekkert fór á milli mála í þessum sam­skiptum. Þess var beðið í nokkrar mín­útur að allir fund­ar­menn skil­uðu sér og þegar for­sæt­is­ráð­herra var komin í hús bauð ég fund­ar­gestum að setj­ast við lang­borð.

Ég sat fyrir miðju borðs­ins öðrum megin með Halldór Hall­dórs­son odd­vita Sjálf­stæð­is­flokks­ins í borg­ar­stjórn við hlið mér, en Guðlaug Þór utan­rík­is­ráð­herra á móti mér. Þá brá svo við Eyþór gengur í sal­inn og býst til að setj­ast í auða sætið við hlið Guðlaugs, sem ætlað hafði verið fyrir for­sæt­is­ráð­herra. Við það gerði ég athuga­semd, ítrek­aði hvers eðlis fund­ur­inn væri, hverjum hefði verið til hans boðið og að ég væri viss um að Vigdís Hauks­dóttir hefði líka verið til í að sitja fund­inn en hann hefði ekki verið ætl­aður fram­bjóð­endum. Ef áhugi væri á slíkum fundi þyrfti að boða hann sér­stak­lega. Eyþór vék við svo búið af fund­inum, for­sæt­is­ráð­herra tók sæti sitt en utan­rík­is­ráð­herra upp­lýsti að hann hefði boðið Eyþóri. Voru ekki höfð uppi mikið fleiri orð um þetta atvik þótt sér­stakt hafi verið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Borgarstjórnarkosningar 2018

ÚttektBorgarstjórnarkosningar 2018

Hags­muna­tengsl borg­ar­full­trúa: Eyþór enn í stjórnum fimm félaga

Eyþór Arnalds situr enn í stjórnum fimm félaga og eru tvö þeirra eign­ar­halds­fé­lög með rúman einn og hálfan millj­arð í eignir. Hann lof­aði að skilja sig frá við­skipta­líf­inu þegar hann vann leið­toga­próf­kjör Sjálf­stæð­is­flokks­ins í jan­úar. Oddviti Við­reisnar og fleiri nýir borg­ar­full­trúar sitja í stjórnum félaga.
FréttirBorgarstjórnarkosningar 2018

Vildi ekki verða „hús­þræll“ í vinstri- og miðju­sam­starfi en mynd­aði atkvæða­blokk með Sjálf­stæð­is­flokknum

Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir, borg­ar­full­trúi Sós­í­alista­flokks­ins, sætir harðri gagn­rýni fyrir að hafa stillt sér upp með Sjálf­stæð­is­flokknum og Mið­flokknum af praktískum ástæðum. „Fram­kvæmd­ar­stjóri borg­ar­stjórn­ar­flokks Sjálf­stæð­is­flokks­ins sendi fyrir hönd allrar stjórn­ar­and­stöð­unnar skipan okkar í nefndir,“ sagði Hildur Björns­dóttir, borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins, í dag.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár