Guðmundur vann náið með unglingum í viðkvæmri stöðu þrátt fyrir grun um kynferðisbrot

Lög­reglan tjáði ekki barna­vernd­ar­yf­ir­völdum að stuðn­ings­full­trú­inn hjá Reykja­vík­ur­borg hefði verið kærður fyrir gróf kyn­ferð­is­brot gegn ung­mennum. Meint brot gegn sjö manns til rann­sóknar.

Guðmundur vann náið með unglingum í viðkvæmri stöðu þrátt fyrir grun um kynferðisbrot
Guð­mundur Ellert Björns­son Starfs­maður barna­verndar er í gæslu­varð­haldi grun­aður um alvar­leg kyn­ferð­is­brot gegn börnum. Mynd: Af Facebook

Kæra á hendur Guðmundi Ellerti Björns­syni, stuðn­ings­full­trúa hjá Barna­vernd Reykja­víkur, lá á borði kyn­ferð­is­brota­deildar lög­reglu í um fimm mán­uði áður en barna­vernd­ar­yf­ir­völd fengu að vita að hann væri til rann­sóknar vegna meintra kyn­ferð­is­brota gegn börnum. Guð­mundur situr nú í gæslu­varð­haldi, en allt þar til í síð­ustu viku starf­aði hann náið með ung­lingum á skamm­tíma­heim­ili þar sem meðal ann­ars eru vistuð fylgd­ar­laus börn sem hafa komið ein­sömul til Íslands í leit að hæli.

Stöð 2 greindi frá máli manns­ins á mánu­dag þegar Guð­mundur var úrskurð­aður í gæslu­varð­hald. Hafði þá Sævar Þór Jónsson, rétt­ar­gæslu­maður pilts sem kærði Guðmund fyrir kyn­ferð­is­brot í ágúst 2017, ítrekað rekið á eftir því að málið yrði rann­sakað. Haft var eftir Sævari í kvöld­fréttum RÚV á þriðju­dag að hann vissi af níu öðrum ein­stak­lingum sem teldu Guðmund hafa brotið gegn sér. Guð­mundur hafði áður verið kærður fyrir kyn­ferð­is­brot árið 2013, en þá reynd­ust brotin sem honum voru gefin að sök fyrnd. Vinnu­veit­endur manns­ins fengu ekki að vita af umræddri kæru frekar en þeirri sem lögð var fram í ágúst.

Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu við­ur­kennir að hafa með þessu gert alvar­leg mis­tök, en Árni Þór Sig­munds­son, yfir­maður kyn­ferð­is­brota­deildar, hefur sagt að ann­ríki og mála­fjöldi hjá emb­ætt­inu hafi orðið til þess að ekki reynd­ist mögu­legt að sinna mál­inu með við­eig­andi hætti. „Það er yfir­sjón, já,“ sagði Árni Þór í sam­tali við Vísi. „Hér hefur verið gríð­ar­legur erill síð­asta árið og þegar þannig ástand er þá aukast lík­urnar á svona.“ Barna­vernd­ar­nefnd Reykja­víkur vinnur nú að því að hafa sam­band við þá sem mað­ur­inn hefur umgeng­ist í störfum sínum í gegnum tíð­ina, en Guð­mundur hefur starfað með börnum og ung­lingum um tutt­ugu ára skeið.  Fram kom íKast­ljósi í kvöld að lög­reglan rann­sak­aði nú meint kyn­ferð­is­brot Guð­mundar gegn sjö manns. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kynferðisbrot

Myndir af neyðarmóttöku sendar áfram: „Ekki myndir sem ég vildi sjá af sjálfri mér“
FréttirKynferðisbrot

Myndir af neyð­ar­mót­töku sendar áfram: „Ekki myndir sem ég vildi sjá af sjálfri mér“

Lögreglu var heim­ilt að senda myndir sem teknar voru af Guðnýju S. Bjarna­dóttur á neyð­ar­mót­töku fyrir þolendur kyn­ferð­is­of­beldis á verj­anda manns sem hún kærði fyrir nauðgun. Þetta er nið­ur­staða Per­sónu­verndar. Guðný segir ótækt að ger­endur í kyn­ferð­is­af­brota­málum geti með þessum hætti fengið aðgang að við­kvæmum myndum af þolendum. „Þetta er bara staf­rænt kyn­ferð­is­of­beldi af hendi lög­regl­unnar.“

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár