Bókaskattur ekki afnuminn strax þrátt fyrir „þverpólitíska sátt“

Þingmenn allra flokka, með Lilju Alfreðs­dóttur núver­andi mennta­mála­ráð­herra fremsta í flokki, lögðu fram frum­varp um taf­ar­laust afnám virð­is­auka­skatts af bók­sölu rétt fyrir kosn­ingar. Slík breyt­ing kemur þó ekki til fram­kvæmda í upp­hafi fjár­laga­árs­ins 2018.

Bókaskattur ekki afnuminn strax þrátt fyrir „þverpólitíska sátt“

Afnám bóka­skatts mun ekki taka gildi í upp­hafi fjár­laga­árs­ins 2018 þrátt fyrir að þing­menn allra flokka á Alþingi hafi lagt fram sam­eig­in­legt frum­varp þess efnis þann 26. sept­em­ber síð­ast­lið­inn. 

Fyrsti flutn­ings­maður þess var Lilja Alfreðs­dóttir, sem nú gegnir emb­ætti mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra í nýrri rík­is­stjórn.

Afnám bóka­skatts er for­gangs­mál sam­kvæmt mál­efna­samn­ingi stjórn­ar­flokk­anna, en þrátt fyrir það er í raun engu slegið föstu um skatt­breyt­ing­una í nýfram­lögðu fjár­laga­frum­varpi Bjarna Bene­dikts­sonar.

Í hópi með­flutn­ings­manna voru þing­menn og ráð­herrar sem þá til­heyrðu núver­andi stjórn­ar­flokkum: Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, Elsa Lára Arn­ar­dóttir, Eygló Harð­ar­dóttir, Gunnar Bragi Sveins­son, Katrín Jak­obs­dóttir, Sigurður Ingi Jóhanns­son, Silja Dögg Gunn­ars­dóttir og Þórunn Egils­dóttir.

Þrátt fyrir þessa „þverpóli­tísku sátt um að afnema bóka­skatt“ kemur skatt­breyt­ingin ekki til fram­kvæmda strax.

Gera má ráð fyrir, ef miðað er við skatt­tekjur und­an­far­inna ára, að afnám virð­is­auka­skatts­ins af bók­sölu kosti rík­is­sjóð um 300 til 400 millj­ónir á árs­grund­velli. 

Lilja Alfreðs­dóttirnúver­andi mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra hefur lagt mikla áherslu á afnám virð­is­auka­skatts af bók­sölu

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisfjármál

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
6
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár