Tekjur af grænum sköttum verða 4,5 milljörðum lægri en fyrri ríkisstjórn stefndi að

Tekjur af kolefn­is­gjaldi, olíu­gjaldi og vöru­gjaldi af öku­tækjum verða sam­tals 4,5 millj­örðum minni í fjár­laga­frum­varpi nýrrar rík­is­stjórnar en til stóð sam­kvæmt fjár­laga­frum­varpi fyrri stjórnar.

Tekjur af grænum sköttum verða 4,5 milljörðum lægri en fyrri ríkisstjórn stefndi að

Tekjur af kolefn­is­gjaldi, olíu­gjaldi og vöru­gjaldi af öku­tækjum verða sam­tals 4,5 millj­örðum minni í fjár­laga­frum­varpi nýrrar rík­is­stjórnar en til stóð sam­kvæmt fjár­laga­frum­varpi fyrri stjórnar.

Kolefn­is­gjald hækkar helm­ingi minna en áður stóð til, eða um 50 pró­sent í stað 100 pró­senta. Mis­mun­ur­inn nemur um 1,7 millj­örðum. Þá er fallið er frá fyrri áformum um tekjuöflun sam­hliða jöfnun olíugjalds við bensíngjald og hægt á afnámi íviln­unar vörugjalds af bílaleigubílum. Þótt kolefn­is­gjaldið verði hækkað minna á árinu 2018 en áætlað var sam­kvæmt fjár­laga­frum­varpi Bene­dikts Jóhann­es­sonar muni gjaldið hækka á næstu árum í takt við aðgerðaáætlun í lofts­lagsmálum.

Fjár­lögin kynntBjarni Bene­dikts­son kynnir fjár­laga­frum­varp nýrrar rík­is­stjórnar.

„Tekjur af vörugjöldum á ökutæki eru áætl­aðar 7,9 ma.kr. á næsta ári sem er 1,9 ma.kr. minna en í fjármálaáætlun. Lækkunin skýrist einna helst af breyttum áformum hvað varðar afnám afsláttar sem bílaleigur hafa fengið af vörugjöldum. Sem fyrr segir er lagt til að fresta gildistöku lag­anna um eitt ár en á móti lækkar afsláttar­þakið um helm­ing,“ segir í grein­ar­gerð frum­varps­ins.

Þing­flokkur Vinstri grænna

Í yfir­liti yfir laga­breyt­ingar sem gerðar verða sam­hliða afgreiðslu fjár­laga er þessi breyt­ing útskýrð með eft­ir­far­andi hætti: „Lagt verður til að álagn­ing vörugjalds á bif­reiðar sem ætl­aðar eru til útleigu hjá ökutækja­leigum fari sam­kvæmt und­anþáguflokki (0–30%) árið 2018 en ekki sam­kvæmt aðal­flokki (0–65%) frá 1. janúar 2018 eins orðið hefði að óbreyttu. Lækk­un­ar­þak vörugjalds á slíkar bif­reiðar verði 250.000 kr. árið 2018.“

Fram kemur í grein­ar­gerð að það hafi einnig áhrif til lækk­unar að inn­flutn­ingur á vist­vænum bif­reiðum auk­ist meira en áætlað var í fjármálaáætlun, m.a. á rafbílum. Tekjur af bensín- og olíugjaldi lækki lítil­lega frá fjármálaáætlun og séu áætl­aðar um 24,7 millj­arðar.

Í stjórn­ar­sátt­mála nýrrar rík­is­stjórnar eru sett fram háleit mark­mið í lofts­lags­málum. „Rík­is­stjórnin vill gera betur en Par­ís­ar­sam­komu­lagið gerir ráð fyrir og stefna að kolefn­is­hlut­lausu Íslandi í síð­asta lagi árið 2040,“ segir meðal ann­ars í sátt­mál­anum þar sem jafn­framt er talað um að skatt­heimta skuli þjóna lofts­lags­mark­miðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“
FréttirRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstr­inu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.
Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis
GreiningRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.
Stjórnarsáttmálinn er stefna Framsóknarflokksins
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Stjórn­ar­sátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Ósk­ars­dóttur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aftur í sátt­mál­anum en ann­arra sér ekki stað.
Ný ríkisstjórn boðar einkaframkvæmdir, orkuskipti og bankasölu, en kvótakerfið og stjórnarskráin fara í nefnd
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Ný rík­is­stjórn boðar einka­fram­kvæmdir, orku­skipti og banka­sölu, en kvóta­kerfið og stjórn­ar­skráin fara í nefnd

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur setur þrjú megin við­fangs­efni í for­grunn: Lofts­lags­mál, öldr­unar- og heil­brigð­is­mál og tækni­breyt­ingar. Styðja á við staf­ræna tækni í heil­brigð­is­málum. Lítið er rætt um skatta­mál. Einka­fram­kvæmdir verða í vega­kerf­inu og vænt­an­lega rukkað fyrir notkun vega.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár