Stundarskráin 24. nóvember–7. desember

Tón­leikar, sýn­ingar og við­burðir næstu tvær vik­urnar.

Stundarskráin 24. nóvember–7. desember

Gróa, Fever Dream, Hórmónar

Hvar? Kex hostel
Hvenær? 25. nóv­em­ber kl. 20.00
Aðgangs­eyrir: Ókeypis.

Strax eftir Ljósa­göngu UN Women blása þrjár hljóm­sveitir til helj­ar­innar tón­leika þar sem konur taka pláss og hafa hátt. Ungu rokk­ar­arnir í Gróu hefja tón­leik­ana, en hljóm­sveitin komst á úrslita­kvöld Mús­íktil­rauna í ár. Fyrrum Reykja­vík­ur­dóttirin og skáldið Vigdís Howser flytur drunga­rega rapp sitt sem Fever Dream, og pönk­ar­arnir í Hórmónum trylla síðan lýð­inn.

Drag-Súgur

Hvar: Gauk­ur­inn
Hvenær? 24. nóv­em­ber kl. 21.00
Aðgangs­eyrir: 2.500 kr.

Dragdrottn­ing­arnar (og kon­ung­arnir) í kab­ar­ett­hópnum Drag-Súgur halda upp á tveggja ára afmæli sitt með þess­ari stór­stjörnu­sýn­ingu. Búast má við gríni og glensi, metn­að­ar­fullum til­þrifum sem RPDR mætti taka sér til fyr­ir­myndar, og gor­djöss dans- og söng­at­riðum.

Cell7, Hildur, Two Toucans

Hvar? Húrra
Hvenær? 24. nóv­em­ber kl. 21.00

Kyngi­magn­aði rapp­ar­inn Cell7 hefur snúið aftur í sviðs­ljósið eftir nokk­urra ára fjar­veru og það með fullt af nýju efni. Hún gaf nýlega út haustsmell­inn „City Lights“ sem ein­kenn­ist af dúndr­andi flæði og góðum töktum, og búast má við meira slíku efni á þessum tón­leikum. Draum­kenndu rapp­ar­arnir Two Toucans og popp­ar­inn Hildur hita upp.

 

Í hlutarins eðli – skissa að íslenskri samtímalistasögu [1.0]

Hvar? Hafn­ar­húsið
Hvenær? 25. nóv­em­ber–1. maí
Aðgangs­eyrir: 1.600 kr.

Á þess­ari sýn­ingu er að finna verk 14 lista­manna og -kvenna sem eru í eigu safns­ins, en þau eiga það öll sam­eig­in­legt að fjalla um efn­is­heim­inn með einum eða öðrum hætti. Sýn­ing­unni er stillt upp á þann hátt að hún varpar ljósi á stefnur og strauma í íslenskri sam­tíma­lista­sögu á 21. öld; til að kanna við­fangs­efni, aðferðir, efni og áskor­anir sem eru ríkj­andi.

Berlín - Reykjavík - Damaskus

Hvar? Gauk­ur­inn
Hvenær? 25. nóv­em­ber kl. 21.00
Aðgangs­eyrir: 1.000 kr.

The Syria Connect Project tengir saman mis­mun­andi listir og menn­ing­ar­heima í þeim til­gangi að skapa sam­kennd milli fólks óháð stað­setn­ingu. Á þessu kvöldi munu grínistar eins og Darren Foreman og tón­list­ar­fólk eins og Blaz Roca koma fram á Íslandi á sama tíma og hlið­stæðum við­burðum í Berlín og Damaskus verður streymt í beinni. Allur ágóði fer í hjálp­ar­starf á Sýrlandi.

Kathy Griffin

Hvar? Harpa
Hvenær? 29. nóv­em­ber kl. 20.00
Aðgangs­eyrir: Frá 5.990 kr.

Grínist­inn Kathy Griffin er á heim­stúr sem byrj­aði í Nýja-Sjálandi, en hún staldrar við á Íslandi og kemur fram á Hörpu. Griffin hefur verið virkur uppi­stand­ari frá 1980 og meðal ann­ars unnið Grammy-verð­laun og tvö Emmy-verð­laun. Túrinn kall­ast „Laugh Your Head Off“, en miðað við fyrri frammi­stöður Griffins má áætla að áhorf­endur muni einmitt gera slíkt hið sama.

SOL

Hvar? Tjarn­ar­bíó
Hvenær? 1. des­em­ber kl. 20.30
Aðgangs­eyrir: 3.900 kr.

Leik­ritið SOL byggir á raun­veru­legri ást­ar­sögu úr sam­tím­anum, en hún fjallar um Davíð sem býr í tveimur aðskildum heimum. Í raun­heim­inum er hann algjör ein­fari, á meðan í hinum staf­ræna heimi er hann félags­vera án vanda­mála, en þar getur hann líka verið í kringum sýnd­ar­ver­una SOL. En eru til­finn­ingar hans í hinum staf­ræna heimi raun­veru­legar?

Jólatónleikar KK og Ellen

Hvar? Frí­kirkjan
Hvenær? 3. des­em­ber kl. 20.00
Aðgangs­eyrir: 6.990 kr.

Þjóð­ar­ger­semarnar KK og Ellen gáfu út jóla­plöt­una „Jólin eru að koma“ fyrir 12 árum og hafa spilað efni af henni víðs vegar síðan þá. Búast má við að heyra alla slag­ar­ana á þessum inni­legu jólatón­leikum, en þau koma fram með hljóm­sveit. Þetta eru fyrstu jólatón­leikar þeirra þetta árið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stundarskráin

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár