Súr Sigmundur kallar Bjarna farþega og segir að hann hljóti að hætta í stjórnmálum

Formaður Mið­flokks­ins, sem er ekki inni í mynd­inni í núver­andi stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum, segir að Bjarni Bene­dikts­son hljóti að ætla að sleppa að bjóða sig fram ef hann sam­þykkir núver­andi for­sendur.

Súr Sigmundur kallar Bjarna farþega og segir að hann hljóti að hætta í stjórnmálum
Sig­mundur og Bjarni Ekki er verið að vinna að end­ur­teknu sam­starfi þeirra á milli. Mynd: Pressphotos

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son kallar Katrínu Jak­obs­dóttur sós­í­alista og segir Bjarna Bene­dikts­son vera far­þega sem hljóti að hætta í stjórn­málum, ef hann fellst á for­sendur núver­andi stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðna, í færslu sinni um við­ræð­urnar. Sjálfur hafði Sig­mundur farið fram á stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð eftir kosn­ing­arnar í lok októ­ber, en virt­ist hvorki vera inni í mynd­inni fyrir myndun vinstri stjórnar né íhalds­stjórnar frá vinstri til hægri. Hann finnur báðum stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum margt til for­áttu og segir þær fyrri „leik­sýn­ingu“.

Fyrir fjórum árum rúmum vann Sig­mundur að því með Bjarna að mynda rík­is­stjórn. Fóru þeir saman í sum­ar­bú­stað fjöl­skyldu Bjarna við Þing­valla­vatn, borð­uðu vöfflur með rjóma, fóru í göngu, grill­uðu og báðu um óska­lag í útvarp­inu, Wild Boys með Duran Duran.

Nú er Sig­mundur hins vegar ekki hluti af stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum fyrr­ver­andi félaga hans, Bjarna Bene­dikts­sonar og Sigurðar Inga Jóhanns­sonar, for­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins, heldur Katrín Jak­obs­dóttir. Í færsl­unni virð­ist Sig­mundur reyna að reka fleyg í sam­starfið.

„Óvenjuleg hegðun“ 

Sig­mundur kallar Katrínu sós­í­alista og segir Bjarna Bene­dikts­son og Sjálf­stæð­is­flokk­inn sýna „einkar óvenju­lega hegðun“. Hann sé „far­þegi í allri þess­ari atburða­rás“.

„Auk þess áformar hann að brjóta blað með því að gera sós­í­alista að for­sæt­is­ráð­herra á Íslandi í fyrsta skipti.“

„Formaður flokks­ins þráir nú að kom­ast í rík­is­stjórn með fólki sem hefur um langt skeið kallað hann glæpa­mann og öðrum verri nöfnum. Hann leit­ast við að koma til valda fólki sem gekk hart fram við að reyna að koma fyrr­ver­andi for­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins og for­sæt­is­ráð­herra í fang­elsi, ásamt fjár­mála­ráð­herra flokks­ins. Auk þess áformar hann að brjóta blað með því að gera sós­í­alista að for­sæt­is­ráð­herra á Íslandi í fyrsta skipti. Full ástæða verður til að óska Katrínu Jak­obs­dóttur til ham­ingju með að ná þessum áfanga og að hafa tek­ist ætl­un­ar­verkið með því að beygja bæði gras­rót eigin flokks og allan Sjálf­stæð­is­flokk­inn sam­tímis. Það er ekki lítið afrek.“

Þá segir hann skatt­kerf­is­breyt­ing­arnar munu sýna hvort hægri eða vinstri verði sterkara í við­ræð­unum. „Ef for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins gefur eftir bæði for­sæt­is­ráðu­neytið og efna­hags­málin má heita öruggt að hann ætli sér ekki að verða í fram­boði í næstu kosn­ingum.“

Og Sig­mundur vandar Fram­sókn­ar­flokknum ekki heldur kveðj­urnar. „Nú er útlit fyrir að mark­miðið um banda­lag Sjálf­stæð­is­flokks og sós­í­alista náist með hjálp Fram­sókn­ar­flokks­ins.“

Hagsmunaárekstur afhjúpaður - hótar lögsókn

Sig­mundur hafði því sem næst hætt að mæta á Alþingi og nefnd­ar­fundi þings­ins eftir að hann tap­aði for­manns­kosn­ingu í Háskóla­bíói í októ­ber í fyrra, hvaðan hann yfir­gaf sal­inn sam­stundis við úrslitin og sagði síðar að brögð hefðu verið í tafli. Aðdrag­and­inn að því að flokks­menn kusu annan for­mann var að Sig­mundur Davíð hafði reynst vera í leyndum hags­muna­á­rekstri per­sónu­legrar og opin­berrar stöðu sinnar sem for­sæt­is­ráð­herra, þar sem félag sem var áður í eigu hans og eig­in­konu hans, sem Sig­mundur sendi konu sinni að helm­ingi fyrir einn Banda­ríkja­dal, átti meira en hálfs millj­arðs króna kröfu í þrotabú íslensku bank­anna sem Sig­mundur sýsl­aði með sem fors­sæt­is­ráð­herra. Sig­mundur hafði sem for­sæt­is­ráð­herra það hlut­verk að tryggja að hags­munir ráð­herra væru uppi á borð­inu og siða­reglum ráð­herra fylgt, en gerði það ekki í eigin til­felli. Sig­mundur hefur hótað þremur fjöl­miðlum mál­sókn vegna umfjöll­unar um hags­muna­á­rekstur hans sem lá hul­inn á aflands­svæði áður en sýnt var fram á hann í umfjöllun um Panama­skjölin. Hann vann hins vegar kosn­inga­sigur í Alþing­is­kosn­ing­unum í lok októ­ber og fékk 10,9 pró­sent atkvæða á lands­vísu og sjö þing­menn kjörna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár