Kristján þarf að borga skatta af földu fé með 25 prósent álagi

Kristján Vil­helms­son hjá Samherja þarf að greiða end­ur­á­kvarð­aða skatta með 25 pró­senta álagi vegna skatta­laga­brota sinna. 5 millj­óna króna sektin var ein­ungis refs­ing vegna brota hans en svo bæt­ast skattar við með álagi. Indriði Þor­láks­son segir að flestir uni nið­ur­stöðum skatta­yf­ir­valda um end­ur­á­kvörðun skatta til að sleppa við opin­ber dóms­mál.

Kristján þarf að borga skatta af földu fé með 25 prósent álagi
Þarf að borga hund­ruð millj­óna Kristján Vil­helms­son þarf að greiða skatta af mörg hund­ruð millj­óna króna eignum með 25 pró­senta álagi. Sektin sem hann greiðir vegna skattsvikanna er ein­ungis 5 millj­ónir króna.

Kristján Vil­helms­son, útgerð­ar­maður og annar stærsti eig­andi Samherja, þarf að borga skatta af hund­ruð millj­óna króna eignum sem skatta­yf­ir­völd á Íslandi vissu ekki um með 25 pró­senta álagi.

Nýlegur úrskurður yfir­skatta­nefndar um skatta­mál Krist­jáns, þar sem greint er frá því að hann hafi ekki skilað skatt­fram­tali í ára­tug og að hann hafi ekki sagt frá eignum sem hann geymdi í útlöndum, sner­ist bara um það að ákvarða hvernig ætti að refsa Krist­jáni Vil­helms­syni fyrir að telja ekki fram eignir sínar og tekjur með réttum hætti. 

Fimm millj­óna króna sektin er því bara lít­ill hluti þess sem hann þarf að greiða til rík­is­ins út af skatt­skilum sínum á síð­ustu árum. Þetta kemur fram í máli Indriða Þor­láks­sonar, fyrr­ver­andi rík­is­skatt­stjóra og aðstoð­ar­manns Stein­gríms J. Sig­fús­sonar fjár­mála­ráð­herra, þegar hann var beð­inn um mat og grein­ingu á úrskurð­inum í máli Krist­jáns. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Skattamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár