Björn Leví: „Ég mun tryggja þennan meirihluta í erfiðum málum sem auðveldum“

Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, seg­ist ganga til stjórn­ar­sam­starfs af ábyrgð og virð­ingu gagn­vart sam­starfs­flokk­unum. „Við Píratar skiljum að verk­efnið er stærra en við.“

Björn Leví: „Ég mun tryggja þennan meirihluta í erfiðum málum sem auðveldum“

„Ég mun tryggja þennan meiri­hluta í erf­iðum málum sem auð­veldum. Enda ætlum við að leita sam­ráðs og ólíkt þeirri rík­is­stjórn sem kol­féll er okkur alvara með til­boði um sam­ráð og sam­vinnu,“ segir Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, í sam­tali við Stundina. 

Ummæli Björns í gær, um að hann vilji ekki taka þátt í því að keyra mál í gegnum þingið í krafti naums meiri­hluta, hafa komið upp og orðið til­efni vanga­veltna í stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum Vinstri grænna, Fram­sókn­ar­flokks­ins, Sam­fylk­ing­ar­innar og Pírata. Þetta stað­festa við­mæl­endur Stund­ar­innar úr tveimur flokkum sem segj­ast þó ekki telja ummælin og afstöðu Björns Levís áhyggju­efni.

„Þetta snýst bara um að ekki er vilji til þess að keyra mál í gegn án nokk­urrar til­raunar til sam­ráðs og sam­tals við aðra flokka og um þetta eru allir flokk­arnir sam­mála,“ segir einn af við­mæl­endum Stund­ar­innar. „Ný rík­is­stjórn mun til dæmis ekki þröngva ólög­legri dóm­ara­skipan í gegnum þingið fram­hjá hæfn­is­nefnd á tveimur dögum með eins atkvæðis meiri­hluta, svo það sé alveg á hreinu.“

Píratar hafa sætt gagn­rýni vegna ummæla Björns, meðal ann­ars frá Agli Helga­syni sjón­varps­manni og Birni Val Gísla­syni, fyrr­ver­andi vara­for­manni Vinstri grænna.

Stundin óskaði eftir skýr­ingum frá Birni Leví og spurði hvort hann hygð­ist ekki taka þátt í að tryggja þing­málum hugs­an­legrar rík­is­stjórnar Vinstri grænna, Fram­sókn­ar­flokks­ins, Sam­fylk­ing­ar­innar og Pírata fram­göngu á kjör­tíma­bil­inu, jafn­vel þegar sú staða kæmi upp að aðeins naumur meiri­hluti væri fyrir þeim.

„Við Píratar skiljum að
verk­efnið er stærra en við“

Í svari sínu seg­ist Björn ætla að standa þétt að baki meiri­hlut­anum. „Ég átta mig á því hvað fellst í að sam­þykkja rík­is­stjórn­ar­sam­starf og geng til þess verk­efnis af ábyrgð og virð­ingu gagn­vart sam­starfs­flokkum Pírata, almenn­ingi og gras­rót,“ segir hann. „Við Píratar skiljum að verk­efnið er stærra en við og snýst um að ná árangri og umbótum.“

Segir Björn vera heiðarlegasta mann sem hún þekki

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, aðal­samn­inga­maður Pírata í stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræð­unum seg­ist vita og og treysta því að Björn Leví hafi sann­fær­ingu fyrir myndun rík­is­stjórn­ar­innar með flokk­unum þremur.

„Píratar þekkja það vel að vera í stjórn­ar­and­stöðu þar sem naumur meiri­hluti hagar sér eins og hann hafi 70 pró­sent kjós­enda á bak við sig í öllum málum. Nú tökum við þátt í stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum sem hafa það bein­línis að mark­miði að stunda lýð­ræð­is­legt vinnu­brögð, stór­aukið sam­ráð og betri sam­skipti gagn­vart minni­hluta,“ segir Þór­hildur Sunna. 

„Breytt vinnu­brögð, styrk­ing þings­ins og lýð­ræð­is­legri menn­ing eru gildi sem Píratar hafa staðið fyrir frá stofnun. Björn Leví stendur heill að baki þessu verk­efni að mynda hér stjórn sem hefur þessi gildi að leið­ar­ljósi, rétt eins og allur þing­flokkur Pírata. Björn Leví er heið­ar­leg­asti maður sem ég þekki og þegar hann seg­ist standa að sann­fær­ingu að baki sam­komu­lagi þá treysti ég því enda hefur hann ítrekað gefið mér ástæðu til.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stjórnmálaflokkar

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár