Stundarskráin 3. - 23. nóvember

Tón­leikar, sýn­ingar og við­burðir næstu þrjár vik­urnar.

Stundarskráin 3. - 23. nóvember

Earthwaves

Hvar: Jarð­böðin Mývatni

Hvenær: 3. nóv­em­ber kl. 13

Aðgangs­eyrir: Frá 3.800–5.900 kr.

Einstakt tæki­færi til að njóta tón­listar, nátt­úru og baða. Fram koma Emmsjé Gauti og Young Nazareth. Boðið er upp á rútu­ferðir frá Akureyri. Arm­bands­hafar á Iceland Airwaves fá frítt inn.

Íó

Hvar: Tjarn­ar­bíó

Hvenær: 5. nóv­em­ber

Aðgangs­eyrir: 2.900 kr. 

Íó er ljóð­ræn sýn­ing um sorg­ar­ferli, sem segir sög­una af Hafrúnu, ákveð­inni stelpu með mikið hrokkið hár sem elskar að ráða í drauma, lesa á hvolfi og fylgj­ast með tungl­inu. En í nótt getur hún ekki sofið því hún saknar ömmu sinnar sáran. Skyndi­lega flýgur hvítur hrafn inn í her­bergið á ógn­ar­hraða. Hún nefnir hann Íó og saman leggja þau af stað í stór­feng­legt ævin­týri. Á ferða­lagi takast þau á við mögnuð öfl sem búa innra með okkur …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár