Stundarskráin 20. október–9. nóvember

Tón­leikar, sýn­ingar og við­burðir næstu þrjár vik­urnar.

Stundarskráin 20. október–9. nóvember

Guð blessi Ísland

Hvar? Borg­ar­leik­hús­inu
Hvenær? 20. októ­ber–2. nóv­em­ber
Aðgangs­eyrir: frá 3.000 kr.

Nýja leik­rit Mikaels Torfa­sonar og Þorleifs Arnar Arn­ars­sonar snýst, eins og tit­ill­inn gefur til kynna, um efna­hags­hrunið og Rann­sókn­ar­skýrslu Alþingis. Þrátt fyrir að við­fangs­efnið sé gott efni í harm­leik er í þess­ari sýn­ingu gerður gleði­leikur úr því, og reynt að kanna brot­hætta sjálfs­mynd Íslend­inga í gegnum tón­list, dans, mynd­list, leik og sprell.

Benny Crespo's Gang & Coral

Hvar? Húrra
Hvenær? 20. októ­ber kl. 21 
Aðgangs­eyrir: 1.500 kr.

Það eru tíu ár síðan að sjálftitl­aða frumraun rokk­ar­anna í Benny Crespo's Gang kom út, en eftir nokk­urra ára pásu snúa þeir aftur, en sögur herma að það stytt­ist í aðra breið­skífu þeirra. Rokksveitin Coral leggur þeim lið, en hún hefur líka verið í dvala síð­ustu ár en snýr aftur nostal­g­í­unnar vegna.

Mugison á trúnó

Hvar? Hljóma­höll, Reykja­nesbæ
Hvenær? 21. októ­ber
Aðgangs­eyrir: 3.900 kr.

Brenni­steins-predik­ara-söngskáldið Mugison sem er (ekki) frá Ísafirði gaf út fimmtu plöt­una sína, „Enjoy!“ í fyrra. Á henni er að finna bæði ljúf lög sem og gróf, en hann flytur fagn­að­ar­er­indið enn á ný í Keflavík þennan laug­ar­dag. Búast má við góðu jafn­vægi af gömlum sem og nýjum lögum.

Tveir samherjar

Hvar? Lista­safni Íslands
Hvenær? 21. októ­ber–13. maí
Aðgangs­eyrir: 1.500 kr.

Verkum tveggja áhrifa­valda fram­úr­stefnu­list­ar­innar í Danmörku á fjórða og fimmta ára­tugnum, Sig­ur­jóns Ólafs­sonar (1908–1982) og Asger Jorn (1914–1973), er stillt upp saman í þess­ari sýn­ingu til að varpa ljósi á ókönnuð tengsl milli þess­ara áhrifa­miklu lista­manna, en þeir áttu í nánum tengslum. Sýn­ing­ar­stjóri er Birgitta Spur.

Rise Against

Hvar? Hörpu
Hvenær? 23. októ­ber kl. 20 
Aðgangs­eyrir: 9.990 kr.

Goð­sagna­kennda banda­ríska melódíska harð­kjarna pönk­sveitin Rise Against herjar á Íslands­strendur, en hún hefur verið starf­rækt í næstum því tvo ára­tugi og gefið út átta breið­skífur. Þar að auki eru með­limir hennar miklir hug­sjóna­menn, og lögð­ust meðal ann­ars gegn end­ur­kjöri George W. Bush árið 2004. Íslenska dúnd­ur­sveitin Une Misère hitar upp.

Kosningavakan

Hvar? Vals­heim­il­inu
Hvenær? 28. októ­ber kl. 20 
Aðgangs­eyrir: eitt atkvæði

Á tíma þar sem kosn­inga­þátt­taka fer snar­minnk­andi, sér­stak­lega hjá ungu fólki, er efnt til kosn­inga­vöku. Þar koma fram sautján mis­mun­andi hljóm­sveitir og tón­list­ar­menn, meðal ann­ars Reykja­vík­ur­dætur, Páll Óskar, Cell7, Aron Can og Hildur. Ókeypis er inn, svo lengi sem gestir sýni mynd af sér á kjör­stað.

Iceland Airwaves

Hvar? Reykja­vík og Akureyri
Hvenær? 1.–5. nóv­em­ber
Aðgangs­eyrir: 21.900 kr.

Iceland Airwaves er án efa hápunktur íslensks tón­list­ar­lífs. Þegar hátíðin stendur yfir er mið­bær Reykja­víkur und­ir­lagður af tón­list og spenn­andi við­burðum, en í ár er hátíðin líka haldin á Akureyri 2. og 3. nóv­em­ber. Alls koma 218 atriði fram í ár, þar með talin Billy Bragg, Mumford & Sons, Fleet Foxes, Pinegrove, og Emilíana Torrini.

Stór-Ísland

Hvar? Hafn­ar­húsi
Hvenær? til 2. febr­úar
Aðgangs­eyrir: 1.600 kr.

Sýningin sam­anstendur af verkum sjö lista­manna frá Norð­ur­lönd­unum, Þýska­landi, Ítalíu, Hollandi og Banda­ríkj­unum sem hafa allir búið og starfað á Íslandi um lengri eða skemmri tíma. Sýningin sýnir fjöl­breyti­leik­ann sem hefur náð kjöl­festu á lista­sviði Íslands. Sýn­ing­ar­stjór­inn, Yean Fee Quay, verður með leið­sögn 2. nóv­em­ber klukkan 20. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stundarskráin

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár