Katrín sagði sig úr uppstillingarnefndinni: „Er ekki handbendi neins“

„Vil ekki að ákvarð­anir mínar eftir þing­störfin þvælist fyrir þeim sem nú fara fram,“ skrifar Katrín Júl­í­us­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Samtaka fjár­mála­fyr­ir­tækja og fyrr­ver­andi þing­kona og ráð­herra Sam­fylk­ing­ar­innar.

Katrín sagði sig úr uppstillingarnefndinni: „Er ekki handbendi neins“

Katrín Júl­í­us­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Samtaka fjár­mála­fyr­ir­tækja og fyrr­ver­andi þing­kona og ráð­herra Sam­fylk­ing­ar­innar til margra ára, sagði sig úr upp­still­ing­ar­nefnd vegna fram­boðs flokks­ins í Suð­vest­ur­kjör­dæmi í morgun. 

Stundin greindi frá setu hennar í upp­still­ing­ar­nefnd­inni í gær og spruttu umræður um málið víða á sam­fé­lags­miðlum. 

Katrín sagði sig úr nefnd­inni snemma í morgun og greinir frá því í athuga­semdum á Facebook þar sem rætt hafði verið um málið.

„Ég sagði mig úr nefnd­inni snemma í morgun. Er með fót­göngu­liða­eðli í mér og fannst sjálf­sagt og eðli­legt að nota póli­tíska reynslu í flokks­starfi nú þegar lít­ill tími er til stefnu. Sós­í­alde­mókrat­inn í mér lifir nefni­lega góðu lífi og vildi ég nú bara hjálpa til,“ skrifar Katrín og bætir við: „Er ekki hand­bendi neins og vil ekki að ákvarð­anir mínar eftir þing­störfin þvælist fyrir þeim sem nú fara fram. Eitt atriði sem ég vil nefna er að í SFF eru tæp­lega 30 fyr­ir­tæki þmt bank­arnir sem að 2/3 hluta eru í eigu ríkis og í sam­tök­unum eru einnig spari­sjóð­irnir. Væri gaman að eiga efn­is­legt sam­tal um þróun þessa umhverfis og mark­mið við tæki­færi. En ein­blínum nú á fólkið sem er að fara fram í öllum flokkum og ræðum mál­efnin.“

Katrín var þing­kona Sam­fylk­ing­ar­innar á tíma­bil­inu 2003 til 2016, iðn­að­ar­ráð­herra frá 2009 til 2012 og fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra frá 2012 til 2013. Hún hefur svo starfað sem fram­kvæmda­stjóri Samtaka fjár­mála­fyr­ir­tækja frá því í nóv­em­ber 2016.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stjórnmálaflokkar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár