Framkvæmdastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja í uppstillingarnefnd hjá Samfylkingunni

Katrín Júl­í­us­dóttir var þing­kona Sam­fylk­ing­ar­innar í 13 ár en starfar nú fyrir hags­muna­sam­tök fjár­mála­fyr­ir­tækja. Hún situr í þriggja manna upp­still­ing­ar­nefnd fyrir Suð­vest­ur­kjör­dæmi.

Framkvæmdastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja í uppstillingarnefnd hjá Samfylkingunni

Katrín Júl­í­us­dóttir, fyrr­ver­andi ráð­herra, situr í þriggja manna upp­still­ing­ar­nefnd vegna fram­boðs Sam­fylk­ing­ar­innar í Suð­vest­ur­kjör­dæmi fyrir kom­andi Alþing­is­kosn­ingar. 

Katrín var þing­kona flokks­ins á tíma­bil­inu 2003 til 2016 en hefur starfað sem fram­kvæmda­stjóri Samtaka fjár­mála­fyr­ir­tækja frá því í nóv­em­ber 2016.

Sem starfs­maður fyrir hags­muna­sam­tök fjár­mála­fyr­ir­tækja hefur það komið í hlut Katrínar að beita sér fyrir því að sköttum sé létt af fjár­mála­fyr­ir­tækjum, meðal ann­ars að skatt­breyt­ingar sem gerðar voru í tíð vinstri­st­jórn­ar­innar verði aft­ur­kall­aðar. Sjálf var hún iðn­að­ar­ráð­herra í umræddri rík­is­stjórn á árunum 2009 til 2012 og fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra frá 2012 til 2013.

Gera tillögu um sigurstranglegan framboðslista

Kjör­dæm­is­þing Sam­fylk­ing­ar­innar í Suð­vest­ur­kjör­dæmi kaus um til­högun við val á fram­boðs­lista í kjör­dæm­inu á sunnu­dags­kvöld. Nið­ur­staðan er sú að fram­boðs­list­inn verður val­inn með upp­still­ingu. 

„Í þriggja manna upp­still­ing­ar­nefnd sitja: Katrín Júl­í­us­dóttir, fv. alþingi­maður, Anna Sigríður Guðna­dóttir, bæj­ar­full­trúi og Gunnar Svav­ars­son, fv. alþing­is­maður sem jafn­framt er for­maður nefnd­ar­innar,“ segir í tölvu­pósti sem flokks­mönnum barst í gær.

„Kallað er eftir til­nefn­ingum að fram­bjóð­endum frá flokks­fé­lögum og fanga leitað víða innan flokks sem utan. Jafn­framt verði horft til fram­boðs­lista vegna síð­ustu kosn­inga. Upp­still­ing­ar­nefnd gerir til­lögu að fram­boðs­lista sem hún telur sig­ur­strang­legan og mun leit­ast við að tryggja að list­inn í heild end­ur­spegli fjöl­breytni sam­fé­lags­ins.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stjórnmálaflokkar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár