Braut gegn tveimur stúlkum og fékk ekki uppreist æru

Maðurinn sem Sigríður Andersen dóms­mála­ráð­herra vildi ekki að fengi upp­reist æru er á sjö­tugs­aldri og var dæmdur í 18 mán­aða fang­elsi árið 2005.

Braut gegn tveimur stúlkum og fékk ekki uppreist æru
Skrifaði ekki undir Sigríður Andersen dóms­mála­ráð­herra afgreiddi ekki beiðni kyn­ferð­is­brota­manns um upp­reist æru. Hann dró umsókn sína til baka eftir að umræða vakn­aði um málið. Mynd: Pressphotos.biz / Geiri X

Maðurinn sem Sigríður Andersen, frá­far­andi dóms­mála­ráð­herra, neit­aði að veita upp­reist æru í sumar er á sjö­tugs­aldri og var sak­felldur fyrir kyn­ferð­is­brot gegn tveimur ungum stúlkum árið 2005 og dæmdur í 18 mán­aða fang­elsi. Önnur stúlkan var 8 til 10 ára gömul þegar brotið var gegn henni en hin var 13 til 14 ára. 

Kyn­ferð­is­brota­mað­ur­inn sótti um upp­reist æru þann 16. mars 2017 og upp­fyllti öll lög­form­leg skil­yrði þess að umsóknin yrði sam­þykkt af ráð­herra og til­lagan afhent for­seta Íslands til und­ir­rit­unar. Sigríður Andersen fékk minn­is­blað um umsókn­ina þann 4. maí síð­ast­lið­inn, en skjalið lá óaf­greitt á borði hennar mán­uðum saman, allt þar til mað­ur­inn dró umsókn­ina til baka. Ári áður höfðu tveir kyn­ferð­is­brota­menn sem hlutu þyngri dóma fengið upp­reist æru.  

Dró umsóknina til baka í kjölfar umræðu

Starf­andi dóms­mála­ráð­herra hefur ítrekað vísað til þess í umræðum um veit­ingu upp­reistar æru og mál barn­a­níð­ing­anna Roberts Downey og Hjalta …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár