Fyrrverandi útvarpsstjóri gagnrýnir RÚV fyrir greiðslu miskabóta

Páll Magn­ús­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og fyrr­ver­andi útvarps­stjóri, gagn­rýnir RÚV fyrir að greiða Guðmundi Spar­takusi Ómars­syni miska­bætur vegna frétta­flutn­ings. „Er RÚV að borga pen­inga til að þurfa ekki að biðj­ast afsök­unar?“

Fyrrverandi útvarpsstjóri gagnrýnir RÚV fyrir greiðslu miskabóta
Gagn­rýnir RÚV Fyrr­ver­andi útvarps­stjóri RÚV segir prinsippið ekki flókið. „Ef fréttin er rétt þá stend­urðu við hana - mála­ferli eða ekki. Ef hún er röng þá leið­rétt­irðu hana og biðst afsök­unar.“ Mynd: Pressphotos

Páll Magn­ús­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og fyrr­ver­andi útvarps­stjóri, gagn­rýnir fyrr­ver­andi sam­starfs­fólk sitt á RÚV harð­lega fyrir að greiða Guðmundi Spar­takusi Ómars­syni 2,5 millj­ónir króna í miska­bætur og máls­kostnað vegna máls­höfð­unar Guð­mundar á hendur RÚV. Á móti kemur að RÚV mun ekki leið­rétta frétta­flutn­ing sinn eða biðj­ast afsök­unar á honum og ummælin ekki dæmd ómerkt. 

„Er RÚV að borga pen­inga til að þurfa ekki að biðj­ast afsök­unar? Kaupa sig frá því að leið­rétta frétt?“ spyr Páll á Facebook-síðu sinni. Þá segir hann prinsippið ekki flókið. „Ef fréttin er rétt þá stend­urðu við hana - mála­ferli eða ekki. Ef hún er röng þá leið­rétt­irðu hana og biðst afsök­unar,“ skrifar Páll. 

Guð­mundur Spar­takus stefndi fjórum frétta­mönnum RÚV fyrir meið­yrði vegna frétta­flutn­ings af fíkni­efna­smygli í Brasilíu og Paragvæ. Rík­is­út­varp­inu ásamt frétta­mönn­unum Jóhanni Hlíðari Harð­ar­syni, Rakel Þor­bergs­dóttur frétta­stjóra, Pálma Jónassyni og Hjálmari Frið­riks­syni var stefnt vegna alls 28 ummæla sem féllu í útvarps­fréttum og á vef Rík­is­út­varps­ins í jan­úar og maí 2016. Krafðist Guð­mundur alls tíu millj­óna króna í miska­bætur vegna frétt­anna og að ummælin yrðu ómerkt. 

„Ef fréttin er rétt þá stend­urðu við hana - mála­ferli eða ekki. Ef hún er röng þá leið­rétt­irðu hana og biðst afsök­unar.“

Önnur fyr­ir­taka átti að vera í mál­inu á morgun, 27. sept­em­ber, en lög­maður Guð­mundar Spar­takusar, Vil­hjálmur H. Vil­hjálms­son, sendi frá sér yfir­lýs­ingu vegna máls­ins í gær. Þar kom fram að Guð­mundur og Rík­is­út­varpið hafi kom­ist að sam­komu­lagi um mála­lok vegna máls­höfð­unar Guð­mundar á hendur Rík­is­út­varp­inu og nánar til­greindum frétta­mönnum í des­em­ber 2016. „Sam­komu­lagið felur í sér að Guð­mundur fær greiddan máls­kostnað og miska­bætur, en telst að öðru leyti trún­að­ar­mál,“ sagði í yfir­lýs­ingu Vil­hjálms. 

Þá greindi Vísir frá því í gær að upp­hæðin sem RÚV greiðir Guðmundi Spar­takusi væri sam­tals 2,5 millj­ónir króna. Margrét Magn­ús­dóttir, skrif­stofu­stjóri RÚV, hafði áður sagt að upp­hæðin væri trún­að­ar­mál en eftir að Vísir skaut mál­inu til úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál var fyr­ir­spurn­inni svarað. 

Sigmundur Ernir sýknaður í sambærilegu máli

Guð­mundur Spar­takus stefndi sömu­leiðis Sigmundi Erni Rún­ars­syni vegna sam­bæri­legra frétta sem birt­ust á Hring­braut á síð­asta ári. Í báðum til­fellum, það er að segja í fréttum RÚV og Hring­brautar, var vitnað í parag­væska frétt­ta­mið­il­inn ABC Color, sem var sá fyrsti til að birta fréttir sem tengdu Guðmund Spar­takus við vafasöm við­skipti þar í landi. 

Hugsi yfir mála­lokum RÚVSig­mundur Ernir Rún­ars­son seg­ist hugsi yfir þessum mála­lokum. „Sér­stak­lega fyrir hönd þeirra sem sitja svo í súp­unni, blaða­manna og frétta­manna á minni miðlum sem hafa ekki bol­magn til þess að greiða út sama fjár­magn og stærsti fjöl­mið­ill lands­ins.“

Sig­mundur Ernir var sýkn­aður í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur í apríl síð­ast­liðnum. Í dóms­orði Hér­aðs­dóms segir meðal ann­ars: „Með umfjöllun sinni tók stefndi ekki sér­staka afstöðu til sann­leiks­gildis frétt­anna. Með hlið­sjón af því að hinar umdeildu stað­hæf­ingar byggðu á frá­sögn ann­arra fjöl­miðla, telur dóm­ur­inn, eins og atvikum er háttað í máli þessu, að ekki sé unnt að leggja þá skyldu á stefnda eða gagn­rýna hann fyrir að grennsl­ast ekki sér­stak­lega fyrir um sann­leika hinna umdeildu stað­hæf­inga. Er ekki unnt að slá því föstu að stefndi hafi vitað að ummælin væru ósönn eða borin út opin­ber­lega gegn betri vit­und. Þegar alls þessa er gætt verður ekki talið að stefndi hafi með umfjöllun sinni vegið svo að æru stefn­anda að það hafi farið út fyrir mörk leyfi­legrar tján­ingar [...]“

„Menn semja sig sjaldan frá málum þar sem þeir telja sig hafa rétt fyrir sér.“

„Ég er dálítið hugsi yfir þess­ari leið Rík­is­út­varps­ins,“ segir Sig­mundur Ernir í sam­tali við Stundina. „Sér­stak­lega fyrir hönd þeirra sem sitja svo í súp­unni, blaða­manna og frétta­manna á minni miðlum sem hafa ekki bol­magn til þess að greiða út sama fjár­magn og stærsti fjöl­mið­ill lands­ins sem fær marga millj­arða úr rík­is­sjóði. Það situr svo­lítið í manni. Þessi mikli aðstöðu­munur sem er á milli lít­illa og frjálsra fjöl­miðla og síðan Rík­is­út­varps­ins þegar kemur að því að semja sig frá hugs­an­legum mála­lokum.“

Sig­mundur segir þessi mála­lok vera ígildi við­ur­kenn­ingar á sekt. „Menn semja sig sjaldan frá málum þar sem þeir telja sig hafa rétt fyrir sér,“ segir hann. 

Guð­mundur Spar­takus áfrýj­aði í mál­inu gegn Sigmundi Erni og verður það tekið fyrir í Hæsta­rétti á næstu miss­erum. Að sögn Sig­mundar hefur ekki verið reynt að gera við­líka samn­inga við hann og í máli RÚV. 

Yfirheyrður vegna hvarfs Friðriks Kristjánssonar

Nafn Guð­mundar Spar­takusar kom fyrir í ítar­legri umfjöllun Stund­ar­innar um hvarf Friðriks Krist­jáns­sonar 1. des­em­ber síð­ast­lið­inn, en þar kemur fram að lög­reglu­yf­ir­völd á Íslandi höfðu í rúm þrjú ár reynt að ná tali af Guðmundi vegna leit­ar­innar af Friðriki, en án árang­urs. Það var ekki fyrr en í októ­ber á síð­asta ári að lög­reglan náði loks­ins tali af Guðmundi þegar hann birt­ist óvænt á land­inu. „Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar var Guð­mundur hand­tek­inn og færður til yfir­heyrslu vegna hvarfs Friðriks en þetta var í fyrsta skipti sem lög­reglan á Íslandi náði að ræða við Guðmund frá því Friðrik hvarf árið 2013. Ekki er vitað hvað Guð­mundur sagði við lög­reglu en honum var sleppt að lok­inni yfir­heyrslu,“ segir meðal ann­ars í umfjöllun Stund­ar­innar frá því í des­em­ber. Þess má geta að ekki fékkst sam­band við Guðmund vegna þeirrar umfjöll­unar.

Guð­mundur Spar­takus stefndi hins vegar blaða­manni Stund­ar­innar, Atla Má Gylfa­syni, vegna umfjöll­un­ar­innar og ummæla sem hann lét falla í tengslum við málið. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
5
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár