Sjálfstæðismenn óánægðir með að fundurinn hafi verið lokaður

„Vissu þau hver nið­ur­staða umboðs­manns Alþingis er?“ spyr sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra um fund stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar. Engin ósk barst um að fund­ur­inn yrði opinn.

Sjálfstæðismenn óánægðir með að fundurinn hafi verið lokaður
Njáll Trausti Frið­berts­son og Jón Gunn­ars­son líta svo á að fund­ur­inn með umboðs­manni Alþingis hafi varpað nýju ljósi á Hjalta­málið. Mynd: Alþingi

Þingmenn Sjálf­stæð­is­flokks­ins eru óánægðir með að fundur stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar með umboðs­manni Alþingis í síð­ustu viku hafi ekki verið opinn og sjón­varpað á þing­vefnum. Jón Steindór Valdi­mars­son, sem tók við af Brynjari Níels­syni sem for­maður nefnd­ar­innar í síð­ustu viku, var gagn­rýndur af nefnd­ar­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins undir lok fundar og spurður hvort honum eða meiri­hluta nefnd­ar­innar hefði verið kunn­ugt um afstöðu umboðs­manns í mál­inu fyr­ir­fram.

Sami tónn er í Facebook-færslu Jóns Gunn­ars­sonar, sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra, sem spyr: „Hvernig stendur á því að nýr meiri­hluti í stjórn­skip­unar-og eft­ir­lits­nefnd Alþingis kaus að láta þennan fund vera lok­aðan fjöl­miðla­mönnum? Vissu þau hver nið­ur­staða umboðs­manns Alþingis er í þessu máli?“ Raunin er þó sú að eng­inn nefnd­ar­maður, hvorki úr Sjálf­stæð­is­flokknum né öðrum þing­flokkum, óskaði eftir því að fund­ur­inn yrði opinn almenn­ingi. 

Ekki ástæða til frumkvæðisathugunar

Á umræddum fundi, sem hald­inn var á fimmtu­dag, kom fram að umboðs­maður teldi ekki til­efni til að hefja frum­kvæð­is­at­hugun á emb­ætt­is­færslum Sigríðar Andersen dóms­mála­ráð­herra og Bjarna Bene­dikts­sonar for­sæt­is­ráð­herra í mál­inu sem varð til þess að rík­is­stjórnin sprakk.

Afstaða umboðs­manns byggir á því að hann sér ekki ástæðu til að ætla annað en að Sigríður Andersen dóms­mála­ráð­herra hafi sagt satt um efni og ástæður sam­tals síns við Bjarna Bene­dikts­son þegar hún greindi Bjarna frá því að nafn Bene­dikts Sveins­sonar, föður hans, væri að finna í gögnum um upp­reist æru kyn­ferð­is­brota­manns­ins Hjalta Sig­ur­jóns Hauks­sonar. Sam­skiptin munu hafa átt sér stað 21. júlí, sama dag og ráðu­neyt­is­stjóri benti Sigríði á nafn Bene­dikts Sveins­sonar. 

Tryggvi Gunn­ars­sonumboðs­maður Alþingis

Framá­fólk í Sjálf­stæð­is­flokknum hefur túlkað afstöðu umboðs­manns sem eins konar heil­brigð­is­vott­orð fyrir verk­lag ráð­herr­anna í umræddu máli, eða stað­fest­ingu á því að upp­þotið vegna Hjalta­máls­ins og sam­skipta ráð­herra um það, hafi verið „allt tómur mis­skiln­ingur“ eins og Jón Gunn­ars­son orðar það með deil­ingu sinni á frétt um málið.

„Við erum komin fram með þær upp­lýs­ingar að það er óþarfi fyrir sam­fé­lagið að vera í ein­hverjum ótta og óör­yggi gagn­vart því að þarna hafi ráða­menn gert eitt­hvað rangt. Svo er ekki,“ skrifar Hildur Sverr­is­dóttir, þing­kona og einn af full­trúum Sjálf­stæð­is­flokks­ins í stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd, af sama til­efni.

„Má reikna með Umboðs­manni Alþingis í Kast­ljós­inu í kvöld eftir fréttir dags­ins?“ spyr Njáll Trausti Frið­berts­son, annar nefnd­ar­maður flokks­ins á Facebook.

Ekki tilefni til að véfengja orð Sigríðar Andersen

Sigríður Andersen greindi Bjarna Bene­dikts­syni frá því þann 21. júlí, að eigin sögn, að faðir Bjarna hefði und­ir­ritað með­mæli fyrir Hjalta Sigurjón Hauksson.

Sigríður Andersendóms­mála­ráð­herra

Á þeim tíma hafði dóms­mála­ráðu­neytið neitað brota­þolum, fjöl­miðlum og almenn­ingi um sams konar upp­lýs­ingar undir þeim for­merkjum að um við­kvæm trún­að­ar­gögn væri að ræða.

Úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál komst síðar að þeirri nið­ur­stöðu að upp­lýs­ing­arnar væru ekki und­an­þegnar upp­lýs­inga­rétti almenn­ings, þvert á laga­túlkun ráðu­neyt­is­ins.

Í bókun sem stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd sam­þykkti sam­hljóða á fimmtu­dag er greint frá þeirri afstöðu umboðs­manns Alþingis, sem fram kom á fund­inum, að það kunni að hafa verið „mál­efna­leg ástæða fyrir því að upp­lýsa for­sæt­is­ráð­herra um trún­að­ar­gögn úr stjórn­sýslu­máli sem tengd­ust aðila nákomnum honum þar sem til­efnið hafi verið að þá hafi verið uppi vanga­veltur um að for­sæt­is­ráð­herra hefði komið að afgreiðslu þessa til­tekna máls“. 

Fram kom í máli Tryggva Gunn­ars­sonar, umboðs­manns Alþingis, fyrir nefnd­inni að hann sæi ekki ástæðu til að véfengja þá skýr­ingu dóms­mála­ráð­herra að hún hefði verið að sinna rann­sókn­ar­skyldu sinni þegar hún hafði sam­band við for­sæt­is­ráð­herra, eða þá skýr­ingu að til­gangur sam­tals­ins hafi verið að skoða meinta aðkomu Bjarna að mál­inu og hvort honum hefði verið kunn­ugt um með­mæli föður síns. Umboðs­maður Alþingis tók einnig fram á fund­inum að það væri ekki hlut­verk hans að skipta sér af því hvort Alþingi aðhefð­ist frekar í mál­inu. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár