Körfuknattleiksmaður fékk uppreist æru fimm árum eftir nauðgunardóm

„Eftirsjá og iðrun er algjör,“ segir í með­mælum frá fyrrum þjálf­ara Sigurðar Ágústar Þor­valds­sonar sem fékk upp­reist æru sama dag og Robert Downey og Hjalti Sigurjón Hauksson.

Körfuknattleiksmaður fékk uppreist æru fimm árum eftir nauðgunardóm

Sigurður Ágúst Þor­valds­son, körfu­bolta­maður í meist­ara­flokki KR og fyrr­ver­andi lands­liðs­maður, er í hópi þeirra sem fengu upp­reist æru í fyrra. Þetta sýna gögn sem dóms­mála­ráðu­neytið afhenti Stund­inni í dag. Sigurður var dæmdur í tveggja ára fang­elsi fyrir nauðgun á 17 ára stúlku árið 2011.

„Ef hægt væri að skrifa bók um hvernig fólk á að koma sér aftur út í lífið þá er saga Sigurðar Ágústar kjörin til þess,“ segir í með­mælum sem fyrr­ver­andi þjálf­ari Sigurðar veitir honum. „Eftirsjá og iðrun er algjör og ein­beit­ingin á að eiga gott líf með sinni fjöl­skyldu og vinum er alls­ráð­andi.“ 

Meðmæli frá sam­starfs­manni Sigurðar af vinnu­stað segja sömu sögu: „Við höfum átt við­ræður um orsök og afleið­ingar þess dóms sem hann hlaut og er aug­ljós eft­ir­sjá og iðrun hjá honum vegna þessa.“

Hér­aðs­dómur og Hæsti­réttur, komust að þeirri nið­ur­stöðu 2010 og 2011 að full­sannað væri að Sigurður hefði brotið gegn stúlkunni og not­fært sér að hún hefði ekki getað spornað gegn verkn­aði hans vegna svefn­drunga sem var rak­inn til þreytu og áfeng­is­drykkju. 

Sigurður neit­aði stað­fast­lega sök en gekkst þó við því að hafa haft sam­ræði við hana. Í dóm­inum er haft eftir stúlkunni að hún hafi vaknað við að hann væri ofan á sér, brugð­ist við með því að öskra og hlaupa út en hann kallað á eftir henni: „Þú veist að ég á fjöl­skyldu“.

Hann lauk afplánun í nóv­em­ber árið 2012 og sótti um upp­reist æru sum­arið 2016. Tillagan var sam­þykkt af Ólöfu Nordal, þáver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra, sama dag og þeir Hjalti Sigurjón Hauksson og Robert Downey fengu upp­reist æru.

 

*Árétting rit­stjórnar. Í upp­haf­legri útgáfu frétt­ar­innar var sagt að yfir­maður Sigurðar hefði veitt honum með­mæli þegar sótt var um upp­reist æru, en við­kom­andi er sam­starfs­maður hans, ekki yfir­maður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kynferðisbrot

Myndir af neyðarmóttöku sendar áfram: „Ekki myndir sem ég vildi sjá af sjálfri mér“
FréttirKynferðisbrot

Myndir af neyð­ar­mót­töku sendar áfram: „Ekki myndir sem ég vildi sjá af sjálfri mér“

Lögreglu var heim­ilt að senda myndir sem teknar voru af Guðnýju S. Bjarna­dóttur á neyð­ar­mót­töku fyrir þolendur kyn­ferð­is­of­beldis á verj­anda manns sem hún kærði fyrir nauðgun. Þetta er nið­ur­staða Per­sónu­verndar. Guðný segir ótækt að ger­endur í kyn­ferð­is­af­brota­málum geti með þessum hætti fengið aðgang að við­kvæmum myndum af þolendum. „Þetta er bara staf­rænt kyn­ferð­is­of­beldi af hendi lög­regl­unnar.“

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár