„Ef ég væri Pamela í Dallas“

Sigríður Jóns­dóttir skrifar um Svika­sögur eftir Maríu Reyndal, sem sýnt er í Borg­ar­leik­hús­inu.

„Ef ég væri Pamela í Dallas“
Leikhús

Svika­sögur

Höfundur María Reyndal
Leikstjórn María Reyndal
Leikarar Berglind Alda Ástþórsdóttir, Birna Pétursdóttir, Hákon Jóhannesson, Katla Margrét Þorgeirsdóttir, Mikael Kaaber, Rebecca Lív Biraghi, Vilhelm Neto og Viktoria Dalitso

Leikmynd og búningar: Eva Signý Berger

Lýsing: Pálmi Jónsson

Hljóðmynd: Þorbjörn Steingrímsson

Sviðshreyfingar: Ernesto Camilo Valdes

Dramatúrg: Maríanna Clara Lúthersdóttir og Æsa Guðrún Bjarnadóttir

Borgarleikhúsið
Niðurstaða:

Óvanalegt feilspor hjá Maríu sem er rétt bjargað fyrir horn.

Gefðu umsögn

Það er ætíð fagn­að­ar­efni þegar ný íslensk leik­verk rata á leik­svið og sér­stak­lega ánægju­legt að bæði Þjóð­leik­húsið og Borg­ar­leik­húsið hefji leik­árið með íslenskum höf­undum. Svika­sögur var frum­sýnt um liðna helgi og er nýjasta leik­sýn­ing Maríu Reyndal.

Á síð­ast­liðnum árum hefur María skrifað og leik­stýrt hjart­næmum sýn­ingum sem fjalla iðu­lega um ofur­venju­legt fólk í erf­iðum aðstæðum. Síðast beindi hún augum sínum að heila­bilun eldri konu og þeim fjöl­skyldu­á­skor­unum sem slíkum veik­indum fylgja. Nú horfir hún til baka, færir áhorf­endur aftur til níunda ára­tugs­ins og tekur fyrir reynslu­heim ung­lings­stelpu sem stendur á tíma­mótum.

Nanna, leikin af Berg­lindi Öldu Ást­þórs­dóttur, stendur á sviði í þann mund að syngja á stórum tón­leikum, hún lítur yfir öxl og rifjar upp örlaga­ríkt tíma­bil í æsku þegar allt breytt­ist. Yngri Nönnu leikur Rebecca Lív Biraghi. Pabbi Nönnu, Tryggvi, leik­inn af Hákoni Jóhann­essyni, er pól­stjarnan í lífi hennar og eru feðginin náin en afdrifa­rík ákvörðun hans á eftir …

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár