Íbúar rússnesku borgarinnar Tambov ganga að kjörborðinu í þingkosningum um helgina, skelfingu lostnir vegna sívaxandi drónaárása Úkraínu og án þess að gera sér nokkrar grillur um að frambjóðandinn sem boðar frið eigi möguleika á sigri.
Við fyrstu sýn virðist allt með kyrrum kjörum í borginni, þar sem um 250 þúsund manns búa, um 500 kílómetra suðaustur af Moskvu. Falleg 19. aldar hús og byggingar frá Sovéttímanum virðast langt frá hernaðarsókn Rússa í Úkraínu, þar sem hundruð þúsunda hafa verið drepin.
„Orðið friður er talið móðgandi, hættulegt.“
Kyrrðin var rofin eina júlínótt þegar úkraínskur dróni skall á vöruhúsi netverslunarrisans Wildberries fyrir utan borgina.
Sjö létust og 25 særðust. Í annarri árás mánuði síðar var vöruhúsið gjöreyðilagt, en þar höfðu um fimm þúsund manns starfað. „Þetta er skelfilegt, það er ómögulegt að lýsa með orðum hversu hræðilegt þetta er,“ sagði Diana, 18 ára námsmaður í borginni. …


















































Hvað ætti Putin að gera? Segja að öll vestræn lönd megi taka yfir Russland, gjörið svo vel, og gera þar það sem ykkur sýnist?
Maðurinn er að passa landið sitt betur en flest þeirra leiðtoga Evrópulanda. Sjá Þýskaland, Bretland og Frakkland, t.d. ... Það er nefnilega djobbið hans.
Það voru því foreldrar þeirra rússnesku hermanna sem deyja núna sem bera meria eða minna ábyrgð á örlögum þeirra.
Að kjósa einhvern öfgaflokk bara af því að vera óánægður gæti komið niður á manni sjálfum eða afkomendum seinna meir.