Banna auglýsingar fyrir vörur sem menga mikið

Aug­lýs­ing­ar á meng­andi vör­um og þjón­ustu verða bann­að­ar í bresku borg­inni Bristol á aug­lýs­inga­skilt­um í eigu borg­ar­inn­ar. Bann­ið nær með­al ann­ars til hrað­tísku, jarð­efna­eldsneyt­is­bíla og flug­ferða.

Banna auglýsingar fyrir vörur sem menga mikið
Mengun Bannið er aðeins fyrsta skrefið í frekari takmörkunum á auglýsingum, en Græningjar mynda meirihluta í borgarstjórn Bristol ásamt Frjálslyndum demókrötum. Mynd: AFP

Borgaryfirvöld í bresku borginni Bristol hafa bannað auglýsingar á öllum vörum sem menga mikið og hvetja til óhóflegrar neyslu, þar á meðal hraðtísku og farartækjum sem ganga fyrir jarðefnaeldsneyti. Bannið nær þó aðeins til auglýsingaskilta og strætóskýla í eigu borgarinnar. Bristol er fyrsta sveitarfélagið í Bretlandi sem bannar auglýsingar af þessu tagi. 

„Guðfeður loftslagsglundroða“
António Guterres, aðalritari Sameinuðu þjóðanna

Bannið nær til fjölmargra vöruflokka. Þar á meðal eru hraðtíska, rafrettur, nikótínpúðar, olíuvörur og öll farartæki sem ganga fyrir jarðefnaeldsneyti. Þá nær bannið einnig til ferðatengdra auglýsinga, eins og flugferða og skemmtisiglinga.

Græningjar eru með meirihluta í borginni. Bannið er aðeins fyrsta skrefið í frekari takmörkunum á auglýsingum og fyrirhugað er að leggja síðar fram tillögur um að bæta fleiri vöruflokkum við, meðal annars kjöti og mjólkurvörum.

Hvatti til banna

António Guterres, aðalritari Sameinuðu þjóðanna, hvatti þjóðir heims árið 2024 til að banna allar auglýsingar frá olíu-, kola- og gasfyrirtækjum, á sama hátt og auglýsingar tóbaksfyrirtækja hafa verið bannaðar í mörgum löndum.

Þá hvatti hann einnig fjölmiðla og fyrirtæki sem eiga og reka samfélagsmiðla til að hætta að taka við fjármunum vegna auglýsinga frá olíu-, kola- og gasfyrirtækjum.

Guterres hefur kallað forsvarsmenn jarðefnaeldsneytisiðnaðarins „guðfeður loftslagsglundroða“ og sakað þá um grænþvott með dýrum auglýsingaherferðum.

Mengun vegna hraðtísku fer vaxandi

Á hverju ári er hent 92 milljónum tonna af fatnaði. Fyrirtæki á borð við Shein, Temu, H&M og Zara hafa aukið sölu á hraðtískufatnaði verulega. Slíkur fatnaður er gjarnan framleiddur úr ódýrum efnum og endist illa.

Evrópusambandið bannaði nýverið stærstu fatafyrirtækjum Evrópu að henda, brenna eða eyðileggja óseldan fatnað, en talið er að hann nemi um 9 prósentum af öllum seldum fatnaði í Evrópu. Fyrirtækin þurfa þess í stað að reyna að selja vörurnar eða gefa þær til góðgerðarmála.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigðis­kerf­inu

Eng­inn á Ís­landi hef­ur lif­að af jafn al­var­leg­an mænusk­aða og Katla Guðna­dótt­ir sem lenti í dul­ar­fullu bíl­slysi 22 ára göm­ul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerf­ið hef­ur ekki af­greitt beiðni henn­ar um heima­þjón­ustu. Bar­átta henn­ar hef­ur þeg­ar skil­að for­dæma­lausri ákvörð­un í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líð­ur henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lif­að slys­ið af.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár