Inga ætlar að standa með atvinnuvegaráðherra „fram í rauðan dauðann“

Inga Sæ­land seg­ir lang­dreg­ið dauða­stríð hvala við veið­ar vera dýr­aníð og hyggst standa með at­vinnu­vega­ráð­herra þeg­ar frum­varp um hval­veið­ar kem­ur til kasta Al­þing­is. Ólaf­ur Ad­olfs­son gagn­rýndi svör henn­ar og kvart­aði síð­ar und­an svör­un­um við for­seta þings­ins.

Inga ætlar að standa með atvinnuvegaráðherra „fram í rauðan dauðann“
Bann Inga hefur áður lagt til bann Mynd: Golli

Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra og formaður Flokks fólksins, segist munu standa með Hönnu Katrínu Friðriksson atvinnuvegaráðherra þegar frumvarp hennar um hvalveiðar kemur til kasta Alþingis.

„Ég mun standa með atvinnuvegaráðherra fram í rauðan dauðann í öllum þeim málum sem við höfum ákveðið að leggja hér fyrir þingið,“ sagði Inga í óundirbúnum fyrirspurnum á Alþingi í dag. 

Hanna Katrín hyggst í febrúar leggja fram frumvarp um breytingar á lögum um hvalveiðar og hefur staðfest að í því verði ákvæði um bann við veiðunum.

Inga hefur áður stutt lagasetningu um bann við hvalveiðum. Hún var sjálf meðal flutningsmanna frumvarps þess efnis sem lagt var fram á Alþingi haustið 2024. Með henni stóðu meðal annars þingmenn Samfylkingarinnar og Viðreisnar, sem nú sitja með Flokki fólksins í ríkisstjórn.

Frumvarpið hafði ekki orðið að lögum þegar Bjarni Benediktsson, þá starfandi matvælaráðherra, gaf …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hvalveiðar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigðis­kerf­inu

Eng­inn á Ís­landi hef­ur lif­að af jafn al­var­leg­an mænusk­aða og Katla Guðna­dótt­ir sem lenti í dul­ar­fullu bíl­slysi 22 ára göm­ul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerf­ið hef­ur ekki af­greitt beiðni henn­ar um heima­þjón­ustu. Bar­átta henn­ar hef­ur þeg­ar skil­að for­dæma­lausri ákvörð­un í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líð­ur henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lif­að slys­ið af.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár