Verulegur viðsnúningur varð á rekstri Kjöríss í fyrra. Fjölskyldufyrirtækið í Hveragerði skilaði 96,5 milljóna króna hagnaði, samanborið við 10,7 milljónir árið áður. Hagnaðurinn nífaldaðist því á einu ári. Tekjur jukust úr tæpum 1,53 milljörðum króna í 1,79 milljarða, eða um 17 prósent, en rekstrarhagnaður jókst enn meira, úr 62 milljónum í rúmar 160 milljónir.
Félagið er í jafnri eigu fjögurra systkina. Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, á fjórðung í fyrirtækinu, rétt eins og systkini hennar, Aldís Hafsteinsdóttir, Sigurbjörg Hafsteinsdóttir og Valdimar Hafsteinsson.
Stjórn Kjöríss, sem er skipuð systkinum Guðrúnar, leggur til að allt að 40 milljónir króna verði greiddar hluthöfum í arð vegna síðasta árs. Verði tillagan samþykkt kæmu tíu milljónir króna í hlut hvers systkinis. Guðrún situr ekki í stjórn Kjöríss og er ekki framkvæmdastjóri félagsins. Hún starfaði hins vegar hjá fjölskyldufyrirtækinu um árabil áður en hún hóf þingmennsku.
Nýjar vörur skýra stóran hluta aukningarinnar
Kjörís …




















































Athugasemdir