Brúðkaupsgestir létust í árás Bandaríkjanna

„Það verð­ur mjög lít­ið eft­ir af Íslamska lýð­veld­inu Ír­an!“ ít­rek­aði for­seti Banda­ríkj­anna, Don­ald Trump. For­seti ír­anska þings­ins líkti stór­veld­inu við „Satan“ eft­ir árás Banda­ríkj­anna á brúð­kaups­gesti í Ír­an.

Brúðkaupsgestir létust í árás Bandaríkjanna

Íran gerði fjölda árása á herstöðvar bandaríkjanna víðs vegar um Mið-Austurlönd í morgun. Átökin hörðnuðu eftir umfangsmiklar loftárásir Bandaríkjanna sem leiddu meðal annars til dauða fjögurra einstaklinga í árás á brúðkaupsveislu í Íran. 

Byltingarverðir Írans tilkynntu um árásir á bandarískar herstöðvar í Jórdaníu, Sameinuðu arabísku furstadæmunum, Kúveit, Barein og sjálfstjórnarhéraði Kúrda í Írak. Um er að ræða hörðustu gagnárásirnar í nokkrar vikur, eftir sex mánaða átök.

Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur áður varað við „mun harðari og umfangsmeiri“ árásum ef Íran svarar árásum Bandaríkjanna. Íransher og ríkisfjölmiðlar þar í landi segja að 18 manns hafi fallið í árásum Bandaríkjanna.

Barn lést í árás á brúðkaup

Stigmögnun átakanna auka enn á pattstöðuna í stríðinu. Íran hefur áfram kverkatak á olíuflutningaleiðinni um Hormuz-sund á meðan Bandaríkin beita gagnhafnbanni gegn írönskum höfnum.

Í tengslum við nýjustu árásirnar sagði Rauði hálfmáninn í Íran í gær að fjórir, þar á meðal barn, hefðu fallið og …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Íransstríðið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár