Öryggisráðstafanir vegna hótana í garð ráðamanna færast í aukana

Rík­is­lög­reglu­stjóri segir það fær­ast í auk­ana að það þurfi að auka örygg­is­við­búnað æðstu stjórnar vegna ógna sem steðja að þeim. Enginn hefur verið hand­tek­inn í tengslum við hót­anir í garð utan­rík­is­ráð­herra.

Öryggisráðstafanir vegna hótana í garð ráðamanna færast í aukana
Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir Utan­rík­is­ráð­herra greindi frá hót­unum rétt fyrir þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um aðild­ar­við­ræður við ESB. Mynd: Golli

Rík­is­lög­reglu­stjóri seg­ist vera með til­vik til skoð­unar er varðar hót­anir gagn­vart Þorgerði Katrínu Gunn­ars­dóttur utan­rík­is­ráð­herra. Hún upp­lýsti um það fyrir helgi í útvarps­við­tali á Bylgj­unni að hún og fjöl­skylda hennar hefðu mátt sæta hót­unum í starfi sínu og beygði af í miðju við­tali.

Í skrif­legu svari emb­ættis rík­is­lög­reglu­stjóra við fyr­ir­spurn Heim­ild­ar­innar kemur fram að síð­ast­liðin ár hafi það færst í auk­ana að efla þurfi örygg­is­ráð­staf­anir „æðstu stjórnar“, eins og það er orðað. Mál Þor­gerðar væri til skoð­unar en eng­inn hefur verið hand­tek­inn vegna þess.

Embættið svar­aði ekki hvort grunur léki á að erlend öfl hefðu reynt að hafa afskipti af þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu Íslend­inga um hvort hefja ætti á ný aðild­ar­við­ræður við Evr­ópu­sam­bandið.

Sam­flokks­maður Þor­gerðar, Jón Gnarr, sagði í við­tali við Heim­ild­ina á kosn­inga­nótt síð­ustu helgi að slíkar hót­anir væru fyrir neðan allar hellur. „Þetta er ekki það fólk sem við erum. Við erum ekki svona fólk. Og við eigum ekki að …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár