Mikil sorg ríkir vegna þess að þrjú ungmenni létu lífið í bílslysi við Krýsuvíkurveg aðfaranótt mánudags. Á morgun hefur verið boðað til minningarstunda á tveimur stöðum. RÚV greinir frá.
Arndísar Höllu Guðlaugsdóttur verður minnst í Lágafellskirkju klukkan 17.30 á morgun. Hún var sextán ára þegar hún lést, fædd árið 2009.
Klukkan 18 hefst síðan bænastund í Háteigskirkju fyrir Benjamín Guðmundsson. Hann var fæddur árið 2005 og því 21 árs gamall. Helga Soffía Konráðsdóttir sóknarprestur hefur umsjón með athöfninni.
Auk þeirra lét lífið stúlka sem fædd var árið 2007. Hún var erlendur ríkisborgari. Ekki hefur enn verið greint frá nafni hennar. Öll voru þau farþegar í bíl sem lenti utan vegar.
Um 200 ungmenni sóttu kyrrðarstund í Langholtskirkju í gærkvöldi á vegum Menntaskólans við Sund. Skólastjóri MS sagði nemendur harmi slegna. Sumir voru sóttir af forráðamönnum eftir fréttir af fráfalli skólasystur þeirra og dagskrá skólans vegna nýnemadaga féll niður.
Lögreglan vinnur nú að rannsókn málsins og ræðir við vitni.
















































Athugasemdir