Banaslysið hefur djúp áhrif á samnemendur

Nemendur í Mennta­skólum við Sund eru í áfalli eftir að skóla­systir þeirra lést í bílslysi um helg­ina. Skóla­meist­ari segir atvikið setja nám og skóla­hald úr skorðum, en nem­endum bjóð­ist að fá stuðn­ing til að takast á við fram­haldið. Hugur þeirra sé hjá ást­vinum hinna látnu.

Banaslysið hefur djúp áhrif á samnemendur
Mennta­skól­inn við Sund Nemendur mættu í Lang­holts­kirkju í gær þar sem þau minnt­ust skóla­systur sinnar sem lést um helg­ina í bílslysi. Mynd: Bára Huld Beck

„Við byrj­uðum á því að funda með starfs­fólk­inu í hádeg­inu þegar áfallateymið var búið að hitt­ast ásamt full­trúa frá Rauða kross­inum,“ útskýrir Helga Sigríður Þórs­dóttir, rektor Mennta­skól­ans við Sund.

Ung stúlka sem var nem­andi í skól­anum lést í bílslysi á Krýsu­vík­ur­vegi um helg­ina ásamt tveimur öðrum ung­mennum. Voru þau fædd á árunum 2005, 2007 og 2009.

Fregn­irnar koma eins og reið­ar­slag en nem­endur voru upp­lýstir um and­lát skóla­systur þeirra í gær. Var hringt meðal ann­ars í for­ráða­menn nem­enda og þeir sóttir eftir að fregn­irnar urðu þeim ljósar.

„Við gengum í stofur hjá eldri nem­endum og sögðum þeim frá atvik­inu, þá eftir að við höfðum sent tölvu­póst á for­ráða­menn þeirra sem yngri eru,“ útskýrir Helga.

Hún segir flesta nem­endur hafa verið grun­lausa um atvikið og því hafi fregn­irnar sett skóla­haldið í nokk­urt upp­nám.

Nýnemavikan nýbyrjuð

„Það var að byrja hér nýnema­vika og nokkur skemmtun …

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu