Hlýjasta sumar í Bretlandi frá upphafi mælinga

Annað árið í röð mælist sum­ar­hiti í Bret­landi hærri en nokkru sinni fyrr.

Hlýjasta sumar í Bretlandi frá upphafi mælinga

Heitasta sumar frá upp­hafi mæl­inga var í Bret­landi, annað árið í röð. Frá því greinir breska veð­ur­stofan í dag, eftir að hverja hita­bylgj­una á fætur síð­ustu vikur og víð­tæka þurrka.

„Sumarið 2026 er, sam­kvæmt bráða­birgða­nið­ur­stöðum, það hlýjasta sem mælst hefur í Bret­landi. Lofts­lags­breyt­ingar af manna­völdum gerðu það um 130 sinnum lík­legra að með­al­hiti sum­ars­ins yrði svo hár,“ sagði breska veð­ur­stofan, Met Office.

Frá júní og til ágúst mæld­ist með­al­hiti í Bret­landi 16,5°C og sló fyrra met, sem sett var í fyrra, 16,1°C. Nærri þrír fjórðu hlutar Englands og allt Wales glímdu jafn­framt við þurrka þar sem úrkoma varð afar lítil.

Júlí var sá næst­heit­asti frá upp­hafi mæl­inga í Bret­landi og í Englandi mæld­ist hlýjasti júní­mán­uður frá upp­hafi fyrr í sumar. Fjöldi hita­meta féll í miklum hita­bylgjum.

Vís­inda­menn vara við því að lofts­lags­breyt­ingar geri öfga­kennda veð­ur­at­burði ákaf­ari og valdi því að hita­met falli sífellt oftar. 

Alls 33 lönd, allt frá …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár