Kveiktu eld í mosku Palestínumanna

Ísra­elsk­ir land­nem­ar van­helga mosk­ur Palestínu­manna. „Lít­il spreng­ing varð sem olli elds­voða inni í mosku­bygg­ing­unni,“ sagði vitni, sem lýsti skyndi­legri árás á mosku á her­numdu svæði á Vest­ur­bakk­an­um. Of­beldi gegn Palestínu­mönn­um er gjarna án af­leið­inga.

Kveiktu eld í mosku Palestínumanna

Ísraelskir landnemar reyndu að kveikja í mosku í hernumda hluta Vesturbakkans, að sögn Palestínumanna. Þetta er nýjasta árásin af þessu tagi á svæðinu.

Palestínska trúmálaráðuneytið sagði að „hópur landnema hefði reynt að kveikja í hlutum Nur al-Din Zanki-moskunnar“ í Bazzaryah, nærri Nablus, og lýsti atvikinu sem „glæpsamlegri árás“.

Ljósmyndir og myndskeið AFP frá Bazzaryah sýna svört brunaför í kringum glugga á herbergi sem tilheyrir moskubyggingunni, auk skilaboða með hótunum á hebresku sem skrifuð voru á útveggi moskunnar.

Réðust skyndilega til atlögu

„Um klukkan 2:45 um nóttina réðust landnemarnir skyndilega til atlögu. Lítil sprenging varð sem olli eldsvoða inni í moskubyggingunni,“ sagði Majed Nasr, sem býr í nágrenninu. Hann bætti við að landnemarnir hefðu síðan flúið af vettvangi.

„Okkur tókst að ráða niðurlögum eldsins áður en ástandið versnaði og eldurinn náði upp í meginhluta byggingarinnar,“ sagði hann við AFP.

Ísraelski herinn svaraði ekki þegar í stað beiðni AFP um viðbrögð …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár