Landsframleiðsla Íslands skreppur saman

Árs­tíð­ar­leið­rétt lands­fram­leiðsla dróst sam­an um 3% á öðr­um árs­fjórð­ungi.

Landsframleiðsla Íslands skreppur saman
Mannfjöldi Mynd: Golli

Samdráttur varð í landsframleiðslu Íslands sem nemur 1,1% á öðrum ársfjórðungi að raunvirði, samkvæmt fyrsta mati Hagstofunnar. Engu að síður jókst samneysla um 1,2% á sama tímabili.

„Framlag vöruviðskipta vegur þyngst í samdrættinum en aukinn halli á vöruviðskiptum samanborið við fyrra ár veldur því að framlag þeirra til hagvaxtar er neikvætt um 2,9 prósentustig á öðrum ársfjórðungi,“ segir Hagstofan. Þjóðarútgjöld jukust að raunvirði um 1,6% á sama tíma og samdráttur var í landsframleiðslu.

Á móti jókst landsframleiðslan í heild fyrri helming 2026 um 1,3%. Ekki er tekið tillit til mannfjöldaþróunar og þar með landsframleiðslu á mann. Hægt hefur á mannfjölgun á árinu, samhliða auknu atvinnuleysi.

Hagstofan segir að áætlað sé að vöru- og þjónustuviðskipti við útlönd hafi verið neikvæð um 87,8 milljarða króna á öðrum ársfjórðungi. Það sé töluvert meiri halli en á sama ársfjórðungi síðasta árs þegar hallinn nam 66,2 milljörðum króna.

Í tölum Hagstofunnar er einnig horft til árstíðarleiðréttrar landsframleiðslu. Hún dróst saman meira, eða um 3% á öðrum ársfjórðungi miðað við fyrsta ársfjórðung.

Einkaneysla jókst um 0,1% á árstíðaleiðréttum mælikvarða, samneysla jókst um 0,4%, og fjármunamyndun hækkaði um 18,5%. Á sama tímabili minnkaði árstíðaleiðréttur útflutningur um 6,7% en innflutningur jókst um 13,1%.

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Efnahagsmál

Verðbólga hækkar meira en væntingar gerðu ráð fyrir
FréttirEfnahagsmál

Verð­bólga hækk­ar meira en vænt­ing­ar gerðu ráð fyr­ir

Vísi­tala neyslu­verðs hækk­aði um 0,46% frá því í júní. Ár­s­verð­bólga mæl­ist nú 6,3 pró­sent en var kom­in nið­ur í 5,8 pró­sent síð­asta mán­uði. Það er meiri hækk­un en spár við­skipta­bank­anna gerðu ráð fyr­ir. Auk­in verð­bólga þýð­ir að minni lík­ur eru á því að stýri­vaxta­hækk­an­ir muni eiga sér stað á þessu ári eins og von­ast var til.

Mest lesið

Ásgeir Brynjar Torfason
4
Pistill

Ásgeir Brynjar Torfason

Und­ir pils­faldi Banda­ríkj­anna

Hvernig lít­ur það út að hafa hafn­að að­ild­ar­við­ræð­um ut­an frá? Með því að úti­loka þann kost, hvernig bregð­umst við hér þá við breytt­um heimi? Ein leið er að taka landa­korti banda­ríska for­set­ans, sem sett hef­ur fána­lit­ina á yf­ir­ráða­svæð­ið sitt, sem gríni. Hvorki Kan­ada né Mexí­kó taka því gríni. Eyj­ar­skeggj­ar á Jamaíku og Kúbu eru lík­leg­ast hrædd­ir. Kannski er það kost­ur að vera bara kok­hraust.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigðis­kerf­inu

Eng­inn á Ís­landi hef­ur lif­að af jafn al­var­leg­an mænusk­aða og Katla Guðna­dótt­ir sem lenti í dul­ar­fullu bíl­slysi 22 ára göm­ul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerf­ið hef­ur ekki af­greitt beiðni henn­ar um heima­þjón­ustu. Bar­átta henn­ar hef­ur þeg­ar skil­að for­dæma­lausri ákvörð­un í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líð­ur henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lif­að slys­ið af.
Borgþór Arngrímsson
4
PistillEitt og annað

Borgþór Arngrímsson

Tromp á hendi Trumps?

Danski her­inn hef­ur ár­um sam­an mátt búa við nið­ur­skurð, sem bæði hef­ur bitn­að á tækj­um og mann­skap. Slæm­ur að­bún­að­ur og lé­leg laun hafa orð­ið til þess að færri sækj­ast eft­ir her­mennsk­unni. Ný­lega varð danski flot­inn að af­lýsa leið­angri til Græn­lands vegna þess að ekki var hægt að manna leið­ang­urs­skip­ið. Slík­ar frétt­ir skaða ímynd flot­ans og geta ver­ið vatn á myllu Banda­ríkja­for­seta.

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
4
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigðis­kerf­inu

Eng­inn á Ís­landi hef­ur lif­að af jafn al­var­leg­an mænusk­aða og Katla Guðna­dótt­ir sem lenti í dul­ar­fullu bíl­slysi 22 ára göm­ul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerf­ið hef­ur ekki af­greitt beiðni henn­ar um heima­þjón­ustu. Bar­átta henn­ar hef­ur þeg­ar skil­að for­dæma­lausri ákvörð­un í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líð­ur henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lif­að slys­ið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár