Helga Vala Helgadóttir, fyrrverandi þingmaður og liðsmaður Evrópuhreyfingarinnar, segir smitáhrif frá Bandaríkjunum og Brexit hafa læðst inn í kosningabaráttuna fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna um það hvort ríkisstjórnin eigi að halda áfram aðildarviðræðum eða ekki. Því var hafnað í kosningum í gær að halda áfram viðræðum, en úrslitin urðu ljós nú í morgun. Viðtalið var tekið áður en úrslitin urðu ljós.
Fáránleg barátta
„Baráttan heilt yfir hefur náttúrlega verið alveg fáránleg,“ svarar Helga Vala spurð hvernig hafi gengið á síðustu vikum og heldur áfram ómyrk í máli: „Og lygin, bullið og falsfréttirnar, ég hef stundum lagt hausinn á koddann og hugsað, hefur þetta fólk enga sómakennd?“
Hún segist sátt við baráttu Evrópuhreyfingarinnar og segir hana hafa verið málefnalega eins langt og hún hafi náð. Henni sé þó brugðið að sjá hvernig umræðan hafi þróast.
Bandarísk áhrif
„Þetta eru smitáhrif frá Bandaríkjunum, alveg …

















































Athugasemdir (1)