Næstu dagar í pólitíkinni gætu orðið súrir og skrýtnir

Björn Ingi Hrafns­son, aðstoð­ar­maður for­manns Mið­flokks­ins, segir næstu daga lík­lega verða ein­kenni­lega í póli­tík­inni. Hann segir nið­ur­stöð­una ekki góða fyrir rík­is­stjórn­ina.

Björn Ingi Hrafnsson Aðstoðarmaður Sigmundar Davíð Gunnlaugssonar, formanns Miðflokksins, sagði ríkisstjórnina í vanda ef niiðurstaðan yrði nei. Það væri ekki á annað bætandi eftir gengi hennar í sveitarstjórnarkosningum.

Björn Ingi Hrafns­son, aðstoð­ar­maður for­manns Mið­flokks­ins, segir nið­ur­stöðu kosn­ing­anna ekki góða fyrir rík­is­stjórn­ina, þá sér­stak­lega eftir gengi hennar í síð­ustu sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum. Hann telur að mál­inu sé ekki lokið.

„Ég held að næstu dagar eigi eftir að verða súrir og skrýtnir í póli­tík­inni, en það var alveg fyr­ir­séð,“ segir Björn Ingi Hrafns­son, aðstoð­ar­maður for­manns Mið­flokks­ins, Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, þegar Heim­ildin ræddi við hann skömmu eftir að fyrstu tölur úr Suð­ur­kjör­dæmi voru til­kynntar. Þar var nei-ið ofan á og gaf tón­inn fyrir það sem átti eftir að ger­ast síðar, sem er að nei-sinnar sigr­uðu þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­una.

„Ég held að það hafi gengið ágæt­lega,“ svarar Björn Ingi spurður um það hvernig hann telji bar­átt­una hafa þró­ast. „Ég held að það sé stíg­andi í því, þegar fólk fór svona að pæla meira í þessu, en þetta er nátt­úru­lega skrýt­inn tími, í lok sum­ars.“

Kjósa
-2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Björn Grétar Sveinsson skrifaði
    hvenær er miðflokksgengið ekki súrt og niðurdrepandi
    0
  • EGT
    Einar G Torfason skrifaði
    Mikið er ég feginn að ég bý í Evrópusambandinu, ekki á Íslandi
    0
    • GÁ
      Guðmundur Ásgeirsson skrifaði
      Þú getur þá verið í Evrópusambandinu án þess að draga okkur hin inn í það.
      1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár