Sigríður Elín Sigfúsdóttir, fjárfestir og fyrrum bankastjóri Nýja Landsbankans, er skattadrottning Suðurlands. Hún er með 469.852.163 krónur í árstekjur fyrir tekjuárið 2025. Í dag starfar Sigríður sjálfstætt, situr í stjórn Beru og er stjórnarformaður Hannesarholts og Arnrúnar íbúðafélags. Sigríður var sakfelld í Ímon-málinu en Mannréttindadómstóll Evrópu komst síðar að þeirri niðurstöðu að hún hefði ekki fengið málsmeðferð fyrir óhlutdrægum dómstóli.
Íbúar Suðurlands virðast einnig hafa nýtt sér tækifæri sem ferðaþjónustan býður upp á eða fjórir af tíu efstu Sunnlendingum Hátekjulistans. Í öðru sæti listans á Suðurlandi er Sverrir Steinn Sverrisson, einn af stofnendum ferðatæknifyrirtækisins Godo. Hann var með 464.617.935 krónur í árstekjur fyrir tekjuárið 2025. Ólíkt öðrum á lista Suðurlands sem fá sínar tekjur að mestu leyti í gegnum fjármagnstekjur, voru það launatekjur Sverris sem skiluðu honum hátekjunum en hann var með árslaun upp á 449.552.244 krónur. Það eru sömuleiðis hæstu árslaun á Suðurlandi í ár.

















































Athugasemdir