Mynd: Víkingur

Fólkið sem græðir á ferðaþjónustunni

Ákveðnir hópar ein­stak­linga hafa hagn­ast gríð­ar­lega á vexti ferða­þjón­ust­unnar und­an­farin ár. Stærstu fimmtán fyr­ir­tækin í grein­inni veltu 373 millj­örðum króna árið 2023.

Ferða­þjón­ustan er ein stærsta atvinnu­grein á Íslandi en hún hefur vaxið gríð­ar­lega á síð­ustu 15 árum sam­hliða mik­illi fjölgun ferða­manna. Heild­ar­fjöldi erlendra far­þega til lands­ins voru tæpar 2,3 millj­ónir í fyrra og var það annað fjöl­menn­asta árið frá upp­hafi. Vin­sældir Íslands sem áfanga­staðar hafa haft gríð­ar­legan upp­gang í för með sér á sviði ferða­þjón­ustu á Íslandi. Svo mik­inn að sumir hafa líkt ástand­inu við gullæði.

Ferða­þjón­ustan skilar gríð­ar­legum gjald­eyr­is­tekjum og mörg þús­und manns starfa í tengslum við iðn­að­inn á Íslandi. Samkvæmt skýrslu sem unnin var fyrir Samtök ferða­þjón­ust­unnar fyrr á þessu ári voru þröng skatta­leg áhrif ferða­þjón­ust­unnar 106,5 millj­arðar árið 2023. Sé litið til víð­tæk­ari áhrifa er skattsporið talið vera um 180 millj­arðar. 

Eins og gengur og ger­ist hefur sumum fyr­ir­tækjum tek­ist betur en öðrum að hasla sér völl á sviði ferða­þjón­ust­unnar. En hver eru stærstu fyr­ir­tækin í íslenskri ferða­þjón­ustu og hverjir eiga þau?

…
Kjósa
22
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristín Guðnadóttir skrifaði
    Tækifæri fólgin í að fólk missi heimili sín og láti lífið í hitabylgjum? „Þessir miklu hitar í Evrópu, þessar gríðarlegu hitabylgjur eiga eftir að auka vinsældirnar, að fólk vilji komast á norðlægar slóðir með svalara loft á þessum heitasta tíma. Ég held að það séu töluverð tækifæri í þessu,“ segir hann.”
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Ferðamannalandið Ísland

Mest lesið undanfarið ár