Skattakóngur Skagafjarðar vill meira til nærsamfélagsins

Gunn­ar Þór Gests­son, sem seldi fyr­ir­tæk­ið sitt til Origo í fyrra, seg­ir það vanda­mál að fjár­magn­s­tekju­skatt­ur og skatt­ar á fyr­ir­tæki renni nær ein­göngu til rík­is­ins en ekki sveit­ar­fé­laga.

Skattakóngur Skagafjarðar vill meira til nærsamfélagsins
Seldi fyrirtækið sitt Gunnar, fyrir miðju, gekk til liðs við teymi Origo við söluna á Kappa. Mynd: Aðsend

Gunnar Þór Gestsson, stofnandi hugbúnaðarráðgjafarfyrirtækisins Kappa, er skattakóngur í Skagafirði þetta árið og er í 48. sæti á Hátekjulista Heimildarinnar.

Árstekjur Gunnars námu tæpum 457 milljónum króna og greiddi hann tæpar 95 milljónir í fjármagnstekjuskatt.

Tilkynnt var um kaup Origo á Kappa í október í fyrra en fyrirtækið hefur sérhæft sig í innleiðingu Microsoft Business Central, nýjustu kynslóð viðskiptakerfa Microsoft. Origo hefur lagt áherslu á að styðja fyrirtæki og stofnanir í hagnýtingu Microsoft-lausna og voru kaupin liður í að framfylgja þeirri stefnu, að því er sagði í fréttatilkynningu.

Gunnar gekk til liðs við Origo með kaupunum og í samtali við Heimildina segir hann margt spennandi í gangi á nýjum vettvangi. Þá gekk teymi Microsoft-sérfræðinga Kappa til liðs við Origo við söluna en markmiðið var að dýpka hæfni félagsins til að veita viðskiptavinum sínum ráðgjöf og þjónustu þegar kemur að innleiðingu fjárhagskerfa.

„Ég er stoltur starfsmaður Origo,“ segir Gunnar. „Við …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hátekjulistinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár