Fleiri spurningar vakna um samband Trumps við aðstoðarkonu

„Þú ert allt sem skiptir mig máli,“ sagði aðstoð­ar­kona Banda­ríkja­for­seta við hann. „Þegiðu,“ sagði Trump við frétta­konu sem spurði út í málið.

Fleiri spurningar vakna um samband Trumps við aðstoðarkonu
Trump með aðstoð­ar­kon­unni Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, stígur út úr Marine One ásamt Natalie Harp, aðstoð­ar­konu sinni, eftir lend­ingu á Ellipse nálægt Hvíta hús­inu síð­ustu helgi, eftir að Trump for­seti varði helg­inni í golf­klúbbi sínum í Bed­min­ster í New Jersey. Mynd: AFP

Hún tekur sér aldrei frí, ekki einu sinni á sunnu­dögum, segir New York Times.

Hún tróð sér í skottið á bíl Donalds Trump fyrir þremur árum þegar hann var á leið í rétt­ar­höld, svo hún yrði ekki eftir, segir CNN. 

Banda­rískir fjöl­miðlar hafa í auknum mæli spurt spurn­inga um aðstoð­ar­konu Donalds Trump, hina 35 ára gömlu Natalie Harp, sem sendir honum reglu­lega fal­leg skila­boð.

Fréttakona ávítt fyrir spurningu

Hvíta húsið réðst í fyrra­dag gegn frétta­konu CNN eftir að hún spurði spurn­ingar um sam­band Donalds Trump for­seta við aðstoð­ar­konu sína, en þetta er sú nýjasta í röð árása á kven­kyns blaða­menn.

Prentar fyrir for­set­annHarp hefur prentað gögn fyrir Trump frá því í for­seta­kosn­ing­unum 2024.

Á við­burði í for­seta­skrif­stof­unni spurði frétta­konan Kristen Holmes hinn átt­ræða Trump hvort hann vildi bregð­ast við ummælum þing­manns …

Kjósa
23
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu