Tilbúin að líta á forsendubrest sem tækifæri fyrir stjórnvöld og fyrirtæki

Sól­veig Anna Jóns­dótt­ir, formað­ur Efl­ing­ar, seg­ist líta svo á að fyr­ir­sjá­an­leg­ur for­sendu­brest­ur kjara­samn­inga í lok mán­að­ar geti ver­ið mik­il­vægt tæki­færi fyr­ir stjórn­völd og fyr­ir­tæki til að gera bet­ur.

Tilbúin að líta á forsendubrest sem tækifæri fyrir stjórnvöld og fyrirtæki
Sólveig Anna Jónsdóttir Formaður Eflingar segir félagið hafa sínar kröfur, og sé tilbúin í samtal gangi forsendur kjarasamninga ekki eftir. Mynd: Heimildin

„Við erum tilbúin til þess að líta á stöðuna með þeim hætti að hér sé að finna tækifæri fyrir aðila vinnumarkaðarins og stjórnvöld til að lagfæra viss atriði í samfélaginu,“ segir Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar. Ljóst þykir að forsendur kjarasamninga muni bresta í lok mánaðar þegar nýjar verðbólgutölur verða birtar.

Fyrirséð er að ársverðbólga muni mælast svo há að forsendur kjarasamninga bresta miðað við forsenduákvæði samninganna sem gerðir voru árið 2024. Í þeim féllstu verkalýðsfélög landsins á hóflegar hækkanir gegn því að verðbólgunni yrði náð niður fyrir fimm prósent, eða 4,7 prósent. Ekkert bendir til þess að verðbólgan fari niður fyrir nauðsynleg mörk eins og kveðið var á um í samningum.

Hlaupist undan merkjum

Formenn sex verkalýðsfélaga skrifuðu grein í byrjun vikunnar þar sem stjórnvöldum og fyrirtækjum var sendur tónninn. Halla Gunnarsdóttir formaður VR sagði þá að fyrirtæki á Íslandi hefðu hreinlega hlaupist undan merkjum og hækkað verðlag og …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár