Markmið Íslands í aðildarviðræðum

Fullt for­ræði yf­ir sjáv­ar­út­vegi var lyk­il­krafa í að­ild­ar­við­ræð­um Ís­lend­inga við Evr­ópu­sam­band­ið. Þó að ekki hafi ver­ið bú­ið að leggja fram samn­ings­markmið var bú­ið að móta þau. Þar var lagt til að lög­sag­an yrði skil­greind sem sér­stakt ís­lenskt fisk­veið­i­stjórn­un­ar­svæði.

Markmið Íslands í aðildarviðræðum

Samningsmarkmið Íslands má finna á vef stjórnarráðsins og greinargerð með þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður að Evrópusambandinu. Þau birtast einnig í fyrri samningaviðræðum við Evrópusambandið, með fyrirvara um að ef Íslendingar ákveða að halda áfram viðræðum verði þau yfirfarin og uppfærð. 

Í athugasemd við þingsályktunartillögu frá árinu 2009 er tilgreint að á meðal grundvallarhagsmuna Íslands sé: Að tryggja forræði þjóðarinnar yfir vatns- og orkuauðlindum, að tryggja forræði þjóðarinnar yfir fiskveiðiauðlindinni, sjálfbæra nýtingu auðlindarinnar og hlutdeild í deilistofnum og víðtækt forsvar í hagsmunagæslu í sjávarútvegi í alþjóðasamningum, að tryggja öflugan íslenskan landbúnað, lýðræðislegan rétt til að stýra almannaþjónustu á félagslegum forsendum, standa vörð um réttindi launafólks og vinnurétt og ná fram hagstæðu og vaxtarhvetjandi samkeppnis- og starfsumhverfi fyrir atvinnulíf á Íslandi.

Í greinargerð með þingsályktunartillögu utanríkisráðherra segir að þessi sjónarmið eigi enn við, auk þess sem vísað er í nefndarálit meirihluta utanríkismálanefndar, þar sem tilgreint er að megináherslur Íslands muni að …

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • GÁ
    Guðmundur Ásgeirsson skrifaði
    Það er ekki meðal samningsmarkmiða íslenskra stjórnvalda að krefjast undanþágu frá ríkisábyrgð á innstæðutryggingum, eins og þeirri sem við höfnuðum í BINDANDI þjóðaratkvæðagreiðslu árið 2011 (Icesave III). Fyrir vikið verður aðeins einn lögmætur svarmöguleiki á kjörseðlinum 29. ágúst enda hefur enginn leyfi til að virða niðurstöður BINDANDI þjóðaratkvæðagreiðslu á grundvelli stjórnarskrárinnar að vettugi.

    Við verðum líka að vera samkvæm sjálfum okkur enda bannar stjórnarskráin mismunun.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Horft til Evrópu

Mest lesið

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
1
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aft­ur í hjúkr­un­ar­fræði eft­ir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­il­ar héldu að Björn Ólaf­ur Har­alds­son væri út­úr­dóp­að­ur þeg­ar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þeg­ar áfall­ið reið yf­ir og þurfti ít­rek­að að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­un­um. Nú stefn­ir hann á að klára nám­ið og koma sterk­ari til baka.
Reykjavíkurborg takmarkar aðgengi að tónlistarnámi
4
Tónlist

Reykja­vík­ur­borg tak­mark­ar að­gengi að tón­list­ar­námi

Þrátt fyr­ir stefnu Reykja­vík­ur­borg­ar um jafn­an rétt til list­sköp­un­ar lýsa skóla­stjórn­end­ur tón­list­ar­skóla þung­um áhyggj­um af þró­un mála. Ald­urstak­mörk hafi orð­ið til þess að vísa þurfti nem­end­um úr námi og aðr­ir kom­ist aldrei að. Sí­fellt sé þrengt að starf­semi tón­list­ar­skóla þar til þeir verði ann­að­hvort að sam­ein­ast eða loka.
Ríkið yrði af 1,6 milljarða tekjum ef gjaldahækkanir fylgdu verðbólgumarkmiði
6
Efnahagsmál

Rík­ið yrði af 1,6 millj­arða tekj­um ef gjalda­hækk­an­ir fylgdu verð­bólgu­mark­miði

Fjár­mála­ráðu­neyt­ið met­ur tekjutap ef gjalda­hækk­an­ir verða tak­mark­að­ar við verð­bólgu­markmið Seðla­bank­ans vera 1,6 millj­arða króna. Eng­in ákvörð­un hef­ur ver­ið tek­in en Kristrún Frosta­dótt­ir for­sæt­is­ráð­herra seg­ir rík­is­stjórn­ina reiðu­búna að tak­marka hækk­an­ir við 2,5 pró­sent ef aðr­ir leggi sitt af mörk­um og kjara­samn­ing­ar haldi.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigðis­kerf­inu

Eng­inn á Ís­landi hef­ur lif­að af jafn al­var­leg­an mænusk­aða og Katla Guðna­dótt­ir sem lenti í dul­ar­fullu bíl­slysi 22 ára göm­ul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerf­ið hef­ur ekki af­greitt beiðni henn­ar um heima­þjón­ustu. Bar­átta henn­ar hef­ur þeg­ar skil­að for­dæma­lausri ákvörð­un í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líð­ur henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lif­að slys­ið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár