„Því miður virðist ekki vera meiri samkeppni en þetta“

Vaxtamun­ur, einn helsti mæli­kvarði á álagn­ingu bank­anna, hef­ur hækk­að og er mun hærri en á Norð­ur­lönd­um. Formað­ur Neyt­enda­sam­tak­anna hvet­ur Sam­keppnis­eft­ir­lit­ið til að skoða hvort þögult sam­ráð bank­anna sé til stað­ar.

„Því miður virðist ekki vera meiri samkeppni en þetta“
Breki Karlsson Formaður Neytendasamtakanna segir hagræðingu bankanna ekki skila sér í betri kjörum fyrir neytendur. Mynd: Golli

Vaxtamunur íslensku bankanna gefur til kynna skort á samkeppni. Á sama tíma og hagrætt er í rekstri eykst gjaldtaka, sem sýnir að sparnaðurinn skilar sér ekki til neytenda. Þetta er mat Breka Karlssonar, formanns Neytendasamtakanna.

Landsbankinn birti uppgjör vegna fyrri hluta ársins á dögunum en þar kom fram að vaxtamunur, það er munurinn á útlánsvöxtum bankans og innlánsvöxtum, hefði hækkað í 3,4%. Á sama tímabili í fyrra var hann 2,9%.

Í uppgjöri Íslandsbanka vegna annars ársfjórðungs má sjá að vaxtamunur á fjórðungnum var 3,4% miðað við 3,3% sama fjórðung árið áður. Hjá Arion banka var vaxtamunurinn 3,5% á fjórðungnum, óbreyttur frá sama tímabili ári áður.

Sveiflurnar voru sagðar að mestu tengjast verðbólguáhrifum en verðbólga hefur haldist yfir 5% á ársgrundvelli frá upphafi árs, sem skýrist að hluta af áhrifum stríðsins í Íran. Ríkisstjórnin brást við með lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti til að stemma …

Kjósa
24
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Sigmundur Guðmundsson skrifaði
    Er ekki augljóst hvers vegna eigendur bankanna vilja halda í krónuna ?
    1
    • GÁ
      Guðmundur Ásgeirsson skrifaði
      Er það svo og hvað kemur það málinu við? Hvorki vextir né verðtrygging eru skrifuð á peningaseðla, heldur lánasamninga. Seðlabankar ákveða ekki vexti húsnæðislána, það gera lánveitendur á öllum helstu myntsvæðum Vesturlanda.
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
1
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aft­ur í hjúkr­un­ar­fræði eft­ir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­il­ar héldu að Björn Ólaf­ur Har­alds­son væri út­úr­dóp­að­ur þeg­ar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þeg­ar áfall­ið reið yf­ir og þurfti ít­rek­að að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­un­um. Nú stefn­ir hann á að klára nám­ið og koma sterk­ari til baka.
Reykjavíkurborg takmarkar aðgengi að tónlistarnámi
6
Tónlist

Reykja­vík­ur­borg tak­mark­ar að­gengi að tón­list­ar­námi

Þrátt fyr­ir stefnu Reykja­vík­ur­borg­ar um jafn­an rétt til list­sköp­un­ar lýsa skóla­stjórn­end­ur tón­list­ar­skóla þung­um áhyggj­um af þró­un mála. Ald­urstak­mörk hafi orð­ið til þess að vísa þurfti nem­end­um úr námi og aðr­ir kom­ist aldrei að. Sí­fellt sé þrengt að starf­semi tón­list­ar­skóla þar til þeir verði ann­að­hvort að sam­ein­ast eða loka.

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigðis­kerf­inu

Eng­inn á Ís­landi hef­ur lif­að af jafn al­var­leg­an mænusk­aða og Katla Guðna­dótt­ir sem lenti í dul­ar­fullu bíl­slysi 22 ára göm­ul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerf­ið hef­ur ekki af­greitt beiðni henn­ar um heima­þjón­ustu. Bar­átta henn­ar hef­ur þeg­ar skil­að for­dæma­lausri ákvörð­un í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líð­ur henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lif­að slys­ið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár