Vildu ekki koma aftur til Íslands með 100 manna hóp

Vilborg Arna Giss­ur­ar­dóttir tók á móti 100 frönskum konum sem komu hingað til að keppa í vetr­ar­í­þróttum. Kostn­að­ur­inn kom í bakið á skipu­leggj­endum móts­ins sem ákváðu að fara næst til Finn­lands. Finnar hafa nýtt styrki ESB við upp­bygg­ingu heim­skauta­ferða­mennsku, en Vilborg vann að verk­efni í byggða­þróun á Suð­ur­landi sem fékk 100 millj­óna styrk þegar Ísland var síð­ast í aðild­ar­við­ræðum.

Vildu ekki koma aftur til Íslands með 100 manna hóp

Þegar 100 franskar konur komu til Íslands til þess að keppa í vetr­ar­í­þróttum beið þeirra veg­legur gjafa­poki á hót­el­her­berg­inu, sem inni­hélt meðal ann­ars dýrar úlpur. Það sem skipu­leggj­endur móts­ins átt­uðu sig ekki á var að með því að afhenda gjafa­pok­ana hér á landi en ekki á flug­vell­inum í Frakk­landi þurftu þeir að greiða toll af inn­fluttum vörum.

Vilborg Arna Giss­ur­ar­dóttir sá um und­ir­bún­ing og mót­töku hóps­ins hér á landi en hún rak ferða­þjón­ustu á þeim tíma. Verk­efnið kom í gegnum franska ferða­skrif­stofu sem sér­hæfir sig í að halda við­burði. Árlega fer fram íþrótta­mót fyrir konur, oft í tengslum við góðan mál­stað, í þessu til­viki brjóstakrabba­mein.

Konurnar sem hingað komu kepptu í tveggja manna liðum í utan­vega­hlaupum, ann­ars vegar á jafn­sléttu við Gullfoss og hins vegar hluta af Fimm­vörðu­hálsi, göngu­skíða­mótum og snjó­þrúgu­hlaupum, á milli þess sem þær stund­uðu jökla­göngur, ísklifur og aðra afþr­ey­ingu. „Dagurinn end­aði alltaf með ein­hverri afþr­ey­ingu. …

Kjósa
23
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Sveinn Ingólfsson skrifaði
    Hvar þurfti að borga tollana??
    0
  • Arnar Guðni Guðmundsson skrifaði
    Ég set spurningu við þessa tolla sem talað er um. Væntanlega um að ræða 24% virðisaukaskatt ofan á heildarverð vörunnar (þ.e. það sem greitt var fyrir vöruna erlendis + flutningur) og svo væntanlega kostnaður vegna tollafgreiðlu. Þetta eru þær reglur sem allir sem flytja vörur til landsins búa við og spurning hvort hægt væri eða rétt sé að sestja sér reglur fyrir svona undantekningar. Væntanlega á sama regla við þegar íbúar á ESB svæðinu ferðast er til annarra landa utan ESB en þar gæti virðisaukaskattur verið mun lægri (t.d. 8,1% í Sviss)
    0
  • ÁR
    Ásmundur Richardsson skrifaði
    Áhugavert og upplýsandi.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Horft til Evrópu

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár