Beint flug til Kína hefst

Kín­verska sendi­ráð­ið hef­ur til­kynnt um fyrsta beina flug­ið á milli Kína og Ís­lands.

Beint flug til Kína hefst
Air China Fyrsta flugið verður frá Keflavík til Beijing 26. október næstkomandi. Mynd: Danny Yu

Kínverska sendiráðið á Íslandi hefur tilkynnt um fyrsta beina flug á milli Íslands og Kína.

Air China sér um flugið en það fyrsta verður 26. október frá Keflavíkurflugvelli til Beijing.

„Hvílíkur árangur í tvíhliða samskiptum!“ segir í færslu sendiráðsins á Facebook. „Þetta mun gjörbreyta ferðalögum á milli Kína og Íslands sem og á milli Asíu og Evrópu!“

He Rulong, sendiherra Kína á Íslandi, hefur lengi talað fyrir beinu flugi á milli landanna, en í júní heimsóttu fulltrúar Air China Ísland til að skoða möguleikann.

Miðasala hefur verið opnuð og mögulegt er að bóka miða í gegnum vefsíðu Air China.

Kjósa
21
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ólafur Garðarsson skrifaði
    Vissulega góðar fréttir. Samskipti við Kína munu bara aukast á næstunni.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár