Breyta lögum svo Landsréttur megi vera í Kópavogi

Stað­setn­ing Lands­rétt­ar verð­ur ólög­leg frá byrj­un næsta árs nema lög­um verði breytt.

Breyta lögum svo Landsréttur megi vera í Kópavogi
Landsréttur Samkvæmt lögum skal Landsréttur vera til húsa í Reykjavík. Mynd: Davíð Þór

Dómsmálaráðuneytið hefur kynnt áform um breytingar á lögum um dómstóla í Samráðsgátt. Eina atriðið sem til stendur að breyta snýr að staðsetningu Landsréttar, sem er til húsa í Kópavogi.

Millidómstigið Landsréttur varð til með lögum sem tóku gildi 1. janúar 2018. Samkvæmt þeim skal Landsréttur staðsettur í Reykjavík.

„Þegar dómstóllinn tók til starfa var ekki til staðar húsnæði í Reykjavík sem hentaði fyrir starfsemi hans,“ segir í skjali dómsmálaráðuneytisins. „Hins vegar var til í eigu ríkisins húsnæði að Vesturvör 2 í Kópavogi sem hentaði dómstólnum og hefur dómstóllinn verið staðsettur þar frá upphafi. Þar sem kveðið er á um í lögum að dómstóllinn skuli hafa aðsetur í Reykjavík var honum heimilað með ákvæði til bráðabirgða að hafa aðsetur utan Reykjavíkur.“

Ákvæðið hefur verið tímabundið í fimm ár í senn og fellur úr gildi 1. janúar 2027. „Nokkur reynsla er komin á starfsemi Landsréttar í þessu húsnæði,“ segir í skjalinu. „Hentar …

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Steinþór Grímsson skrifaði
    Stofnanir Ríkisins eiga ekki að vera í leiguhúsnæði nema ef þær eru eru bráðabirgðastofnanir til stutts tíma. Stofnanir eins og dómstólar, skattstofur og lögregla eiga ekki að vera í leiguhúsnæði. Bæði það er margfalt dýrara og óþjálla til breytinga og ríkisfyrirtæki eiga ekki að vera einhver matarhola fyrir einkageirann. Ríkisfyrirtæki á að reka á hagkvæmasta hátt og vera með bestu þjónustuna á kostnaðarverði. Sem dæmi: Við rekum sýslumannsembætti og borgum öll laun og kostnað en af hverju rukka þeir svo fyrir öll skírteini, ljósrit og viðvik?
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Hvar eru skattgreiðslur þeirra auðugustu?
2
Hátekjulistinn

Hvar eru skatt­greiðsl­ur þeirra auð­ug­ustu?

Marg­ir þeirra efstu á Há­tekju­lista Heim­ild­ar­inn­ar í ár seldu fyr­ir­tæki sem þeir höfðu byggt upp í ára­tugi og fengu ein­skipt­is hagn­að. Kerf­ið ger­ir hins veg­ar auð­ug­ustu Ís­lend­ing­um auð­velt að halda arði og hagn­aði af eigna­sölu inni í fé­lög­um sín­um án þess að greiða af þeim skatt. Rík­ið borg­aði út­svar þeirra á list­an­um sem ein­göngu voru með fjár­magn­s­tekj­ur.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár