Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur segir að hitamet frá 1939 gæti jafnvel fallið á morgun. Það sé þó ekki gefið.
Þetta kemur fram í færslu sem hann birtir á Facebook, þar sem hann segir að enn sé beðið færis á því að gamla hitametið frá Teigarhorni góðviðrissumarið 1939 verði slegið. Það var 30,5°C.
Á morgun séu nokkuð ákjósanlegar aðstæður á Austurlandi til þess. Í því samhengi nefnir hann nokkra lykilþætti:
1.
Þykktin
„Spákortið sem fylgir, sýnir þykkt á milli 1000 og 500 hPa flatarins. Því meiri þykkt, því heitara er loftið í neðri hluta lofthjúpsins. Frá því seinnipartinn í dag, þriðjudag og þar til í fyrramálið, rekur 564 dam línuna inn á Austurland.
Þykkt á þessu róli, 564-565 dam er fremur fátíð yfir landinu. Hún var það vissulega í hitabylgjunni miklu í ágúst 2004 þá í tvo til þrjá daga samfellt. Þá komu hlýindi úr suðaustri. Aftur síðan 24. og 25. ágúst í eftirminnilegum hlýindum fyrir austan 2021. Þá eins og nú var SV- og V-átt. Á Hallormsstað mældust 29,4 stig. Reyndar vafasöm mæling að mínu mati.“
2.
Hitinn
„Hiti í 850 hPa er líka mikilvæg spábreyta.
+16°C í þeirri hæð (um 1.400 m) á morgun fyrir austan er með því allra hæsta sem hér sést.
Svipað var þessa ágústdaga 2021 og um 15 til 16°C 2004. Þá ekki síður yfir vestan- og norðanverðu landinu. Hár hiti í 850 hPa er oft til marks um niðurstreymi að ofan þar sem loftið hlýnar skarpt.“

3.
Vindurinn
„Hlýja loftið yfir landinu þessa dagana, er lagskipt og stöðugt. Vind þarf til að koma hlýjasta loftinu niður, saman með truflun frá fjöllum.
Slíkar aðstæður virðast vera ágætar austanlands á morgun. Spáð er SV 13-17 m/s í fjallahæð. En niðurstreymið hlémegin er hins vegar oftast staðbundið.“
4.
Sólskinið
„Sólskin gegnir tvíþættu hlutverki. Sólin hitar yfirborðið og þar með loftið í lægstu lögum. En hún hjálpar líka til við blöndun við efri lög (eykur þanni óstuðugleika loftsins).
Sólarleysi, þó hlýtt loft sé til staðar gerir það að verkum að hlýjasta loftið í 1 til 3 km hæð nær aldrei til yfirborðs og það flýtur yfir fram hjá.
Í dag er skýjað fyrir austan, en því spáð að það létti til í fyrramálið (sjá spátunglmynd ECMWF).“

5.
Tími ársins
„Tími ársins. Það munar um sólahæðina við sumarsólstöður þegar hitinn mældist einmitt 30,5°C árið 1939 og mánuði síðar, svo ekki sé talað um síðla í ágúst eins og raunin var síðast þegar atlaga var gerð að hitametinu.“
6. Tími dagsins
„Það vinnur gegn möguleikanum á að hitinn nái einhvers staðar 30 stigum á morgun að hlýjasta loftið staldrar við yfir nóttina og snemma morguns. Eftir hádegi á morgun dregur heldur úr hitagæðum og eins er spáð háskýjabreiðu frá miðjum degi. Eins og gefur að skilja dregur þá eitthvað úr upphitun sólar í eftirmiðdaginn.“
Eftir að hafa farið yfir allar þessar forsendur kemst veðurfræðingurinn að niðurstöðu: „Að framansögðu tel ég og þrátt fyrir allt minna en 50 prósent líkur á að hámarkshiti landsins á viðurkenndum hitamæli á morgun fari yfir 30,5°C. En það gæti hæglega mælst mest 28 til 30°C. Myndi þá giska á staði eins og Seyðisfjörð eða Borgarfjörð eystri, svona til að nefna einhverja.“

















































Athugasemdir