„Í dag eru liðin 5 ár síðan líf mitt breyttist að eilífu“

Alex­andra Ada Hilmars Sig­ur­jóns­dóttir minn­ist þess að fimm ár séu liðin frá því henni var nauðgað. Hún kærði en mað­ur­inn svipti sig lífi. For­eldrar hans kærðu hana fyrir rangar sak­ar­giftir en hún var sýknuð.

„Í dag eru liðin 5 ár síðan líf mitt breyttist að eilífu“
Alex­andra Ada Hilmars Sig­ur­jóns­dóttir Alex­andra birtir færslu á Facebook til að gera upp það sem hún upp­lifði síð­ustu fimm ár.

„Í dag eru liðin 5 ár síðan líf mitt breytt­ist að eilífu. Fyrir fimm árum var mér nauðgað.“

Þannig byrjar Facebook-færsla sem Alex­andra Ada Hilmars Sig­ur­jóns­dóttir birti á laug­ar­dag.

„Ég hélt að það erf­ið­asta yrði að lifa af nauðg­un­ina sjálfa. En það sem tók við á eftir varð að löngu og sárs­auka­fullu ferða­lagi sem ég hefði aldrei getað ímyndað mér,“ skrifar hún.

„Á meðan kæru­málið mitt var enn í gangi svipti ger­andi minn sig lífi,“ bætir hún við.

Alex­andra lýsir því í færsl­unni, sem hún gaf Heim­ild­inni leyfi til að fjalla um, hvernig hún fyllt­ist af reiði við að mað­ur­inn þyrfti aldrei að mæta fyrir dóm. En sjálfs­víg hans hafi orðið umfjöll­un­ar­efni í frétta­miðlum.

„Stuttu síðar birt­ust fréttir um sjálfs­víg hans á Vísi, mbl , DV og Mannlífi,“ skrifar hún. „Þar var fjallað um að hann hefði svipt sig lífi eftir ásak­anir um kyn­ferð­is­brot og talað um hversu góður …

Kjósa
52
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár