Að minnsta kosti ellefu manns hafa látið lífið í skógareldum sem geisuðu um ferðamannasvæði í Andalúsíu á Suður-Spáni. Sum fórnarlambanna urðu innlyksa í logandi bifreiðum en önnur létust þegar þau reyndu að flýja eldinn gangandi.
Yfirvöld segja að margir þeirra sem létust í eldinum, sem kviknaði í gær og lagði skóga og víðáttumikið kjarrlendi í rúst á Los Gallardos-svæðinu, séu taldir vera erlendir ríkisborgarar. Enn er leitað að 19 manns sem saknað er.
Spánn hefur undanfarna daga glímt við háan hita sem skapar kjöraðstæður fyrir hraða útbreiðslu gróðurelda.
Forseti héraðsstjórnar Andalúsíu, Juan Manuel Moreno Bonilla, sagði að fjórir þeirra sem létust hefðu verið í bifreið með stýrið hægra megin. „Þeir virðast hafa verið breskir ríkisborgarar og brunnu til bana inni í bílnum,“ sagði hann í viðtali við spænskt útvarp.
Mínútu þögn
Filippus VI Spánarkonungur, Letizia drottning og dætur þeirra tvær minntust fórnarlambanna með einnar mínútu þögn. Eldurinn er talinn …


















































Athugasemdir