Dóra Björt ráðin deildarstjóri hjá Rauða krossinum

Fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúi Pírata hef­ur ver­ið ráð­inn til höf­uð­borg­ar­deild­ar Rauða kross­ins.

Dóra Björt ráðin deildarstjóri hjá Rauða krossinum
Dóra Björt Guðjónsdóttir Borgarfulltrúi til átta ára hefur verið ráðinn til Rauða krossins. Mynd: Bára Huld Beck

Dóra Björt Guðjónsdóttir hefur verið ráðin deildarstjóri höfuðborgardeildar Rauða krossins og mun hefja störf þann 1. september næstkomandi. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Rauða krossins.

Dóra Björt var borgarfulltrúi Pírata í 8 ár en skipti yfir í Samfylkinguna undir lok kjörtímabilsins. Hún náði ekki þeim árangri í prófkjöri Samfylkingarinnar sem hún sóttist eftir og tók ekki sæti á lista flokksins fyrir borgarstjórnarkosningar í vor. Hún er 38 ára og með BA-gráður í bæði heimspeki og alþjóðafræðum frá Óslóarháskóla og diplómu á meistarastigi í alþjóðasamskiptum frá Háskóla Íslands.

Höfuðborgardeild Rauða krossins er stærsta deild félagsins með 35 starfsmenn og um 600 sjálfboðaliða.

„Undir deildina heyra skaðaminnkunarverkefnin Ylja og Frú Ragnheiður, verkefni tengd félagslegum stuðningi við flóttafólk sem og við fólk sem er að afplána fangelsisdóma eða hefur nýlokið þeim,“ að því segir í tilkynningunni. „Þá heldur deildin úti margvíslegum félagslegum verkefnum, svokölluðum vinaverkefnum, sem miða að því að auka …

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Hvar eru skattgreiðslur þeirra auðugustu?
1
Hátekjulistinn

Hvar eru skatt­greiðsl­ur þeirra auð­ug­ustu?

Marg­ir þeirra efstu á Há­tekju­lista Heim­ild­ar­inn­ar í ár seldu fyr­ir­tæki sem þeir höfðu byggt upp í ára­tugi og fengu ein­skipt­is hagn­að. Kerf­ið ger­ir hins veg­ar auð­ug­ustu Ís­lend­ing­um auð­velt að halda arði og hagn­aði af eigna­sölu inni í fé­lög­um sín­um án þess að greiða af þeim skatt. Rík­ið borg­aði út­svar þeirra á list­an­um sem ein­göngu voru með fjár­magn­s­tekj­ur.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár