Okkur er sagt að pólitík eigi ekki heima í íþróttum, eða í söngvakeppnum, og því eigi ekki að taka neina afstöðu á þeim vettvangi.
Þannig bannaði Gianni Infantino, forseti Alþjóðaknattspyrnusambandsins FIFA, fyrirliðum landsliða að bera armband til stuðnings mannréttindum, með áletruninni „OneLove“, á heimsmeistaramótinu í Katar 2022, því það væri pólitískt.
Þegar ákveðið var að halda heimsmeistarakeppnina í fótbolta í Katar, þar sem réttindi kvenna og samkynhneigðra, farandverkamanna og fleiri eru fótum troðin, var augljóst að ógagnsætt ferlið við valið á mótslandinu bauð upp á spillingu.
Sama var þegar Rússland Vladimirs Pútíns hélt HM 2018, nokkru eftir fyrstu landvinninga sína í Úkraínu.
Þegar sú stund nálgaðist að HM í fótbolta yrði haldið að hluta í Bandaríkjum Donalds Trump vöknuðu strax áhyggjur vegna þess að fjöldi fólks hefur verið handtekinn þar án dóms og laga, fyrir að vera útlendingar. Svo bætist við spillingin, í landi þar sem forsetinn náði að græða yfir 120 milljarða króna af viðskiptum með rafmyntir á fyrsta starfsári sínu, á sama tíma og vafasöm ríki hafa hag af því að kaupa óefnislegar eignir af fjölskyldu hans.
Áður en HM hófst veitti Gianni Infantino Donald Trump „friðarverðlaun FIFA“, sem höfðu verið fundin upp sérstaklega í því skyni að veita Trump þau, vegna þess að hann var ósáttur við að fá ekki friðarverðlaun Nóbels.
Nokkrum vikum síðar réðst Trump inn í Venesúela og skömmu eftir það hóf hann stríð gegn Íran, landi sem hafði unnið sér inn rétt til að keppa á HM. Trump hótaði íranska landsliðinu.
„Íranska karlalandsliðið í fótbolta er velkomið á heimsmeistaramótið, en ég tel í raun ekki viðeigandi að það sé hér, vegna lífs þeirra og öryggis,“ skrifaði hann.
Þegar liðið kom loks á HM var stór hluti starfsliðsins þeirra bannað að koma inn í Bandaríkin og liðinu sjálfu var meinað að gista í landinu þar sem það keppti.
FIFA gerði ekki neitt í því.
Sómalskur dómari, sem átti að dæma á heimsmeistaramótinu, var handtekinn við komuna til landsins. Hann var yfirheyrður í 11 klukkustundir, áður en hann var sendur úr landi. Ástæðan var að nafninu hans „svipar til“ nafns manns á lista yfir grunaða hryðjuverkamenn. Hann hafði verið valinn dómari ársins í Afríku í fyrra.
FIFA gerði ekkert, annað en að lýsa því yfir að það sé á forræði gestgjafalandsins að velja hverjir koma til landsins.
Engir áhorfendur komu frá Íran. Ekki heldur frá Fílabeinsströndinni.
Mannréttindasamtökin Amnesty international kalla þetta grimmilega og rasíska mismunun.
Það er líklegt að mismunun gagnvart keppendum frá Íran hafi haft áhrif á að liðið féll naumlega úr leik í keppninni, taplaust, þar sem leikmennirnir fengu ekki sömu tækifæri og aðrir til að hvílast eftir leiki, heldur þurftu jafnóðum að ferðast úr landi.
Forseti Bandaríkjanna - sem fékk friðarverðlaun FIFA rétt áður en hann réðst á tvö lönd og eftir að hafa hótað að innlima Grænland í Bandaríkin með valdi, gert kröfu um meiri hernaðarútgjöld og boðað hátt í helmingsaukningu herútgjalda í Bandaríkjunum - hringdi í forseta FIFA, Gianni Infantino, og bað um að framherji Bandaríkjanna, sem reglum samkvæmt fékk leikbann eftir beint rautt spjald, fengi að sleppa við leikbannið.
Í þetta skipti gerði FIFA eitthvað og ákvað að sleppa leikmanninum Folarin Balogun, við bann.
„Ég fékk þá til að gera þetta,“ sagði Trump. En bætti seinna við: „Það eina sem ég gerði var að biðja um endurskoðun. Ég sagði ekki: „Þú verður að gera þetta.““
Óljóst er hvað verður um stuðningsmenn eða aðra sem mótmæla ákvörðuninni. Nýlega var hjólreiðamaður gripinn af þjóðvarðliðum og ákærður fyrir að koma við flagnaða málningu í tjörninni í Washington sem Trump lét mála í misheppnaðri framkvæmd sem var án útboðs. Tvær manneskjur voru skotnar til bana í vetur fyrir að mótmæla handtökum útlendingalögreglu Trumps á götum úti.
Knattspyrnusamband Íslands kaus Gianni Infantino 2016 sem forseta FIFA, þegar hann lofaði að siðvæða sambandið eftir spillingu fyrri ára. Seinast, árið 2023, var hann sjálfkjörinn. Þá hækkaði nefnd FIFA grunnlaunin hans um þriðjung. Þau eru núna um milljón íslenskar krónur á dag, eða 345 milljónir króna á ári. Það er fyrir utan 410 milljónir króna sem hann fékk í bónusa í fyrra fyrir að auka tekjur FIFA. Hann er því með vel yfir 2 milljónir króna í laun á hverjum degi. En þegar hann byrjaði taldi hann tilboð um 250 milljónir króna í árslaun vera „móðgandi“.
Nú er kominn tími til að sameinast um mótframbjóðanda fyrir kosningarnar 2027. Þegar valdinu er beitt í þágu spillingar þarf að sameinast um gagnstætt afl.
Og það er líka kominn tími til að hætta að láta eins og afstöðuleysi gegn misnotkun valds sé dyggð. Lösturinn er að samsama sig henni.
Spillingin dreifir úr sér og í hvert skipti sem hún er innleidd eða látin viðgangast, eru það skilaboð til annarra um að hún leyfist.
Um leið minnir þetta okkur á það að við erum með tvíhliða varnarsamning við landið sem er undir valdi þess sem mest gerir til að auka spillingu í heiminum í dag.

















































Já við vissum það og auðvitað er það ekki gott.
En hver er þá fréttin í þessum skrifum?
Eða er þetta engin frétt heldur skoðanapistill?
Það er allt í lagi, það má hafa þá skoðun að þetta sé ekki gott.
Góðar stundir.