„Ólíklegt“ að aðgerðaáætlun um líffræðilega fjölbreytni nái markmiðum

Nátt­úru­fræði­stofnun telur drög umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráðu­neyt­is­ins að aðgerða­á­ætlun um líf­fræði­lega fjöl­breytni ganga „full skammt“. Ekki sé lík­legt að Ísland nái mark­miðum sínum og alþjóð­legum skuld­bind­ingum sem stendur.

„Ólíklegt“ að aðgerðaáætlun um líffræðilega fjölbreytni nái markmiðum
Árangur ólík­legur Nátt­úru­fræði­stofnun telur Ísland ekki lík­legt til að ná mark­miðum sínum. Mynd: Róbert A.Stefánsson

Nátt­úru­fræði­stofnun telur drög umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráðu­neyt­is­ins að aðgerða­á­ætlun um líf­fræði­lega fjöl­breytni 2026–2030 ganga „full skammt“ og segir þau ekki í „nægi­lega góðu sam­ræmi“ við stefnu stjórn­valda um verndun um líf­fræði­lega fjöl­breytni sem kom út í byrjun árs. Telur stofn­unin ekki lík­legt að Ísland nái fram öllum mark­miðum sínum úr stefn­unni með aðgerða­á­ætl­un­inni í núver­andi formi. 

Drög að aðgerð­ar­á­ætlun um líf­fræði­lega fjöl­breytni 2026-2030 voru birt í sam­ráðs­gátt stjórn­valda þann 3. júní en frestur til að senda inn umsagnir rann út 24. júní. Áætlunin er liður í veg­ferð stjórn­valda í að inn­leiða skuld­bind­ingar Íslands gagn­vart samn­ingi Sam­ein­uðu þjóð­anna um líf­fræði­lega fjöl­breytni og Kunming–Montreal ramma­sam­komu­lag­inu. Aðgerða­á­ætl­unin sam­anstendur af nítján aðgerðum og eru fimm þeirra í for­gangi. Það eru vernd­ar­svæði í hafi, virk svæð­is­vernd á landi, hvatar fyrir vernd og end­ur­heimt vist­kerfa og sjálf­bæra land­nýt­ingu, átak í gerð stjórn­unar- og vernd­ar­á­ætl­ana og land­bún­aður og nátt­úru­vernd.

ÓsamræmiAðgerða­á­ætl­unin er …
Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Náttúruvernd

23 mín.
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár