Banvæn hitabylgja í Evrópu: Fjörtíu drukknað í Frakklandi

Ban­væn hita­bylgja geng­ur yf­ir Evr­ópu. Á tæpri viku hafa fjör­tíu drukkn­að í Frakklandi, að­al­lega ungt fólk. Þá fund­ust tvö lít­il börn lát­in í bíl fjöl­skyld­unn­ar. For­sæt­is­ráð­herr­ann, Sebastian Lecornu, lýs­ir hinum látnu sem fórn­ar­lömb­um kreppu sem heim­ur­inn stend­ur frammi fyr­ir.

Banvæn hitabylgja í Evrópu: Fjörtíu drukknað í Frakklandi

Síðastliðin nótt var sú heitasta frá upphafi mælinga í Frakklandi. Alls hafa 40 drukknað á síðustu fimm dögum, eða frá 18. júní, á meðan hitabylgja gengur yfir landið. Á meðal hinna látnu er aðallega ungt fólk, segir forsætisráðherrann, Sebastian Lecornu.

Þá fundust tvö börn, tveggja og fjögurra ára gömul, látin í bíl fjölskyldunnar í suðausturhluta Frakklands í gær, þegar hitinn var í hámarki, að sögn saksóknara.

Daginn áður létust þrír aldraðir einstaklingar á heimili sínu í Gironde vegna hitans.

Á hjúkrunarheimilinu Pean Nursing Home í París hafa starfsmenn gripið til sérstakra ráðstafana til að vernda íbúana. 

„Það er ekki nóg að setja vatnsglas fyrir framan fólk og segja því að drekka. Það þarf að tryggja að það geri það í raun,“ sagði hjúkrunarforstjórinn Badra Hamadi.

Nýtt hitamet annað árið í röð

Rauð hitaviðvörun nær til 54 héraða á meginlandi Frakklands og hefur áhrif á um 39 milljónir íbúa.

Hitametið í Frakklandi var aftur slegið. Meðaltal dags- og næturhita náði 29,2°C nú í júní og sló fyrra met sem sett var þann 30. júní á síðasta ári.

Samkvæmt veðurstofunni Météo-France var síðastliðin nótt sú heitasta sem mælst hefur í Frakklandi frá árinu 1947. Landsmeðaltal hitamælinga, sem byggir á 30 veðurstöðum víðs vegar um landið, var 21,6°C. Aðeins nokkur ár eru síðan fyrra metið var sett, í júlí 2019. Þá mældist næturhitinn 21,4°C.

Hitabylgjan hefur raskað daglegu lífi og leitt til þess að yfir 1.350 skólum var lokað og lestarferðum hefur verið frestað. Yfirvöld í París hafa varað við því að samgöngukerfið verði undir miklu álagi vegna hitabylgjunnar. „Járnbrautarteinar þola ekki hitastig yfir 50 gráður,“ sagði Valérie Pécresse, forseti héraðsráðs Île-de-France. Hvatti hún fólk til að fresta ferðalögum ef mögulegt væri og vinna heiman frá sér, sérstaklega viðkvæma hópa.

Í suðvesturhluta Frakklands stöðvaði kjarnorkuver einn af kjarnakljúfum sínum vegna þess að kælivatn úr ánni var orðið of heitt og fór yfir öryggismörkin, 28°C.

Forsætisráðherrann boðaði til neyðarfundar í morgun vegna ástandsins.

Fyrstu fórnarlömbin

Lýsti forsætisráðherra Frakklands drukknununum sem „hörmulegri plágu“.

„Þau eru fyrstu fórnarlömb þeirrar kreppu sem við stöndum frammi fyrir“
Sebastian Lecornu
Forsætisráðherra Frakklands

„Nýjustu tölur sem okkur hafa borist sýna 40 dauðsföll frá 18. júní, aðallega á meðal ungs fólks,“ sagði Lecornu á neyðarfundinum. „Þau eru fyrstu fórnarlömb þeirrar kreppu sem við stöndum frammi fyrir.“

Fjöldi þeirra sem hefur drukknað um og eftir helgina er kominn upp í 20, segir íþrótta- og æskulýðsmálaráðherrann, Marina Ferrari, um leið og hún hvetur fólk sem kælir sig niður í vötnum og sjó til að fara varlega.

Loftlagsskjól opnað á Spáni

Á Spáni hófst hitabylgjan á sunnudag og ráðgert er að hún vari að minnsta kosti fram á fimmtudag. Vísindamenn telja Spán vera eitt þeirra Evrópulanda sem eru einna berskjölduðust fyrir áhrifum loftlagsbreytinga. Á síðustu árum hafa hitabylgjur orðið tíðari og erfiðari viðureignar. 

Í gær mældist hiti 40°C eða meira á 101 af 828 veðurstöðum sem spænska veðurstofan AEMET rekur.

Í Madríd, þar sem hitinn fór í 40°C á mánudag, opnaði borgarstjórnin sérstakt „loftslagsskjól“ fyrir heimilislaust fólk og aðra viðkvæma hópa.

Reyndi að finna hvíld frá hitanum 

Veðurstofan í Portúgal telur að þriðjudagurinn verði heitasti dagur hitabylgjunnar þar í landi.

Á Spáni tók gildi hitaviðvörun sem nær yfir nánast allt landið. Hæsta viðvörunarstig gildir á ákveðnum svæðum á suður- og norðurhluta landsins.

Á 30 veðurstöðvum fór hitinn ekki niður fyrir 25°C í nótt, sem þykir undirstrika hversu öflug hitabylgjan er. Við ströndina nálægt Almería í suðurhluta Andalúsíu hefur hitinn ekki farið niður fyrir 30°C þrjár nætur í röð. 

Rauð viðvörun gildir fyrir svæði í kringum borgina Crodoba í suðri, borgina Bilbao í norðri og hluta af héraðinu Cantabria. Spáð er allt að 40°C í skugga á sumum svæðum í Baskalandi við landamærin að Frakklandi, þar sem svo mikill hiti er sjaldgæfur. 

„Ég veit ekki einu sinni hvað hitinn er mikill, en þetta er skelfilegt... og ég er frá Mexíkó“
Clarisa Arismendi
Læknir á Spáni

Í Cordoba reyndi læknirinn Clarisa Arismendi að finna sér stundarhvíld frá hitanum. „Ég er að borða ís því þetta er hræðilegt. Það er eins og hörmung. Ég veit ekki einu sinni hvað hitinn er mikill, en þetta er skelfilegt... og ég er frá Mexíkó,“ sagði hún.

Stór svæði á mið- og norðurhluta Spánar eru undir appelsínugulri viðvörun, en annars staðar er gul viðvörun í gildi á flestum stöðum. Aðeins strandsvæði sleppa við hitaviðvörun. 

Nýtir morgnanna vel 

Í Barcelona, þar sem hitinn hefur hækkað án þess þó að ná þeim öfgum sem sést hafa annars staðar á Spáni, þurfti hinn 76 ára gamli Jose Farre að nýta svalari morgunstundirnar fyrir innkaupaferð.

„Ég er með hjartasjúkdóm, er með sykursýki og finn mjög mikið fyrir þessu,“ sagði hann og útskýrði að hækkandi hitastig hefði gert honum erfiðara fyrir að sofa og jafnvel anda.

„Hitinn hefur hækkað um nokkrar gráður frá því ég var ungur og fram til dagsins í dag. En það sem truflar mann mest er rakinn,“ bætti hann við.

Bann við flugeldum og blysum

Ótti við gróðurelda og önnur slys hefur leitt til takmarkana á hátíðarhöldum í Katalóníu á þriðjudag, sem venjulega eru haldin með flugeldum og varðeldum.

Yfirvöld hafa hvatt fólk til sérstakrar varúðar og bannað er að skjóta upp flugeldum eða kasta logandi hlutum innan 500 metra frá skóglendi.

„Hitinn hefur hækkað um nokkrar gráður frá því ég var ungur og fram til dagsins í dag“
Jose Farre
Eldri borgari á Spáni

Þá hefur íbúum og ferðamönnum verið ráðlagt að halda sig á svölum töðum, takmarka líkamlega áreynslu utandyra, drekka reglulega vatn og gæta sérstaklega að börnum, öldruðum og öðrum viðkvæmum hópum. 

Viðvörunarstigi lýst á Ítalíu

Á Ítalíu hefur heilbrigðisráðuneytið lýst yfir hæsta viðvörunarstigi vegna hita í 15 borgum, þar á meðal Mílanó og Róm. Gert er ráð fyrir að borgunum muni fjölga áður en yfir lýkur.

Á þessum svæðum eru íbúar hvattir til þess að halda sig innandyra yfir heitasta tíma dagsins, borða léttan mat og kæla sig reglulega með köldu vatni.

Vísindamenn vara við því að endurteknar hitabylgjur séu skýr vísbending um hlýnun jarðar og að þær verði tíðari, lengri og harðari á komandi árum.

Fimm létust í Þýskalandi

Í Þýskalandi létust fimm nú um helgina, en þar hefur banaslysum sem eiga sér stað við sund einnig fjölgað.

Tveir menn, 20 og 22 ára, drukknuðu í vötnum í Bæjaralandi og 79 ára gömul kona lést í Eystrasalti. Önnur banvæn sundslys urðu í vötnum í Brandenborg og Norðurrín-Vestfalíu.

Á flugvellinum í Frankfurt þurftu nokkrir farþegar að fá aðhlynningu vegna hitaslags eftir að flugvél þeirra hafði staðið á flughlaðinu í meira en klukkustund fyrir brottför.

Belgía gæti slegið hitamet

Í Belgíu er spáð því að hitabylgjan muni standa yfir í viku, með „hæsta hita sem nokkru sinni hefur mælst“, að sögn veðurfræðingsins David Dehenauw hjá belgísku veðurstofunni.

Sumir skólar hafa stytt skóladaginn niður í hálfan dag.

Sjaldgæf hitaviðvörun í Bretlandi

Aðeins nokkrum vikum eftir að Bretland sló hitamet fyrir maímánuð gaf veðurstofan út hæstu viðvörun fyrir ákveðin svæði á mið- og suðurhluta Englands. Það hefur aðeins einu sinni verið gert áður.

„Við búumst við alvarlegum og víðtækum áhrifum af þessari hitabylgju, með heilsufarslegum afleiðingum fyrir marga, ekki aðeins þá sem venjulega teljast viðkvæmir fyrir hita,“ sagði starfsmaður veðurstofunnar, Mark Sidaway.

Viðvörunin gildir fyrir miðvikudag og fimmtudag og nær meðal annars til London, Birmingham og Bath.

Fjölmargir skólar hafa lokað starfsemi sinni og verða lokaðir næstu daga. „Fæstar byggingar okkar er hægt að kæla nægilega og lítið er um skugga utandyra,“ útskýrði starfsmaður skóla í Buckinghamshire.

„Það er alvarlegt að sjá hitastig sem þetta í Bretlandi í júní“
Stephen Belcher
Vísindamaður í Bretlandi

Járnbrautafyrirtækið Network Rail hvatti farþega til að ferðast aðeins ef brýna nauðsyn bæri til næstu daga. 

Lestarlínan sem tengir norðausturhluta Englands við London gaf jafnvel út ráðleggingu um að fólk skyldi alls ekki ferðast nema nauðsyn bæri til.

Alvarlegt að sjá þetta 

Veðurstofa Bretlands segir líklegt að núverandi júníhitamet Bretlands, 35,6°C frá árinu 1976, verði slegið. Talið er að hitamet gæti fallið strax í dag, þegar hitinn gæti náð 37°C í suðurhluta landsins. Á næstu dögum gæti hitinn farið upp í 40°C í skugga á sumum svæðum, sem væri fordæmalaust svo snemma sumars.

Veðurstofan varaði einnig við svokölluðum „hitabeltisnóttum“, þar sem hitinn helst óvenjuhár alla nóttina.

„Það er alvarlegt að sjá hitastig sem þetta í Bretlandi í júní,“ sagði aðalvísindamaður veðurstofunnar, Stephen Belcher „Loftslagsbreytingar af mannavöldum hafa gert atburði sem þessa líklegri og öfgakenndari,“ bætti hann við.

Sérfræðingar hafa ítrekað varað bresk stjórnvöld við því að landið sé illa undirbúið fyrir sífellt heitari sumur.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Tæknistreita leiddi til skógarbaða
1
Viðtal

Tækn­istreita leiddi til skóg­ar­baða

Shinrin-yoku, eða skóg­ar­bað eins og það út­leggst á ís­lensku, er heiti á gagn­reyndri að­ferð til streitu­los­un­ar þar sem er ver­ið að beina hug­an­um og skyn­fær­un­um með­vit­að að nátt­úr­unni. Shinrin-yoku var við­bragð við versn­andi lýð­heilsu í Jap­an og er nú hluti af heil­brigðis­kerf­inu þar. Hér hafa þær Gunn­þóra Ólafs­dótt­ir og Ír­is Lana Birg­is­dótt­ir í sam­vinnu við Skóg­rækt­ar­fé­lag Reykja­vík­ur boð­ið upp á skóg­ar­böð í Heið­mörk, sem hafa þó ekk­ert með eig­in­leg böð að gera.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Sáu sárin sem hún faldi
1
ViðtalElsku Embla

Sáu sár­in sem hún faldi

Þann 7. júní verða fimm ár lið­in frá frá­falli Emblu Arn­ars Katrín­ar­dótt­ur. And­lát henn­ar var harma­fregn fyr­ir sam­fé­lag­ið, en fjöl­skyld­an sat eft­ir með sorg­ina. Löngu áð­ur en Embla fékk grein­ingu var fjöl­skyld­unni orð­ið ljóst að hún væri orð­in al­var­lega veik, en vegna þess hve þög­ul veik­ind­in voru tók tíma að fá áheyrn. Jafn­vel þá skorti skiln­ing á stöðu barns­ins, sem svipti sig lífi og var jörð­uð á fimmtán ára af­mæl­is­dag­inn sinn.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár